Neytendur

Inn­kalla vegna „óöruggs kjöts“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Óöruggt kjöt er í vörunni.
Óöruggt kjöt er í vörunni. Matvælastofnun

Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Bapao beef frá Tjendrawasih þar sem óvissa er um öryggi kjöts sem notað var í vöruna. 

Varan, sem fæst bæði í verslun Fiska.is á Nýbýlavegi og Dai Phat supermarket í Faxafeni, hefur verið innkölluð í samráði við heilbrigðiseftirlitsstofnanir á höfuðborgarsvæðinu.

Umrædd lota er best fyrir dagana 6. nóvember 2026, 9. janúar 2027 og 12. febrúar 2027. Hún er framleidd í Taílandi af Dutch Bakery Group sem er með höfuðstöðvar sínar í Hollandi.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að þeim hafi borist tilkynning í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður. Neytendur skulu ekki neyta vörunnar heldur farga henni eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×