Körfubolti

Tap fyrir Þjóð­verjum í skraut­legum leik

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hulda María Agnarsdóttir skoraði flest stig íslenska liðsins í dag.
Hulda María Agnarsdóttir skoraði flest stig íslenska liðsins í dag. Mynd/FIBA

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri tapaði fyrir Þýskalandi 85-74 á EM U20 í Litáen í dag. Tapið þýðir að Ísland keppir um ellefta sæti mótsins.

Leikur dagsins fór erfiðlega af stað. Þýskaland skoraði 22 stig gegn ellefu í fyrsta leikhlutanum og jók forskotið enn frekar fyrir hálfleik. Staðan 51-28 þegar hálfleiksflautið gall.

Allt annað íslenskt lið mætti til leiks í þriðja leikhluta. Ísland skoraði heil 31 stig gegn aðeins sjö stigum Þýskalands í þriðja leikhluta. Þar á meðal var flautukarfa Berglindar Kötlu Hlynsdóttur sem þýddi að Ísland var skyndilega einu stigi yfir, 59-58, fyrir síðasta leikhluta leiksins.

Þýskaland svaraði hressilega fyrir sig eftir útreiðina í þriðja leikhlutanum. Þær þýsku skoruðu fyrstu 16 stig leikhlutans og eftir það var róðurinn þungur fyrir okkar konur sem spiluðu heilar fimm mínútur í leikhlutanum án þess að skora stig.

Bilið sem þær þýsku byggðu upp í byrjun leikhlutans reyndist og breitt til að brúa. Þýskaland vann 85-74 sigur.

Hulda María Agnarsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu í dag með 20 stig en Rebekka Rut Steingrímsdóttir skoraði 19 stig.

Þar sem Ísland tapaði þessum leik mun liðið spila um ellefta sæti mótsins. Þar spilar Ísland á morgun við annað hvort Ungverjaland eða Lettland. Sigurlið þess leiks spilar við Þýskaland um níunda sætið en tapliðið við Ísland um ellefta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×