Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ís­firðinga

Kári Mímisson skrifar
Vestramenn eru bikarmeistarar og spila því í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Vestramenn eru bikarmeistarar og spila því í undankeppni Evrópudeildarinnar. vísir/anton

Bikarmeistarar Vestra ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrsta Evrópuleik sínum. Þeir sækja Qarabag frá Aserbaídsjan heim í dag.

Um er að ræða fyrri leik liðanna í einvígi í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar og hefst leikurinn klukkan 16.

Hægt er að horfa á beina útsendingu CBC frá þjóðarleikvanginum í Bakú, í gegnum Youtube-streymi hér að neðan. Textalýsingu Vísis frá leiknum má finna í flipanum hér að ofan.

Liðin mætast að nýju að viku liðinni á Þróttarvelli, í seinni leik sínum. Tapliðið í einvíginu fer í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar en sigurliðið áfram í 2. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira