Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júlí 2026 12:32 Pierluigi Collina var fremsti dómari heims á sínum tíma. Hann er nú formaður dómaranefndar FIFA. getty/Elizabeth Ruiz Ruiz Alþjóða knattspyrnusambandið hefur brugðist við ásökunum egypska knattspyrnusambandsins um að brögð hafi verið í tafli þegar Argentína komst í átta liða úrslit HM á kostnað Egyptalands.
Egyptar voru afar ósáttir við frammistöðu Frakkans Francois Letexier og félaga hans í leiknum í Atlanta í fyrradag. Egyptaland tapaði leiknum, 3-2, en mark var dæmt af liðinu í stöðunni 0-1. Egyptar vildu svo meina að dæma hefði átt aukaspyrnu á Argentínumenn í aðdraganda sigurmarks Enzos Fernández. Bæði leikmaðurinn Mostafa Zico og þjálfarinn Hossam Hassan fóru mikinn í viðtölum eftir leik og töluðu um svindl. FIFA hefur nú tekið til varna og formaður dómaranefndar sambandsins, Pierluigi Collina, segir að enginn geti dregið heiðarleika dómaranna á HM í efa. „Við höfum núna spilað fimmtíu prósent fleiri leiki en á HM 2022 og enn eru átta stórir leikir eftir. Heilt yfir erum við sáttir en þegar svona margir leikir eru á tiltölulega stuttum tíma er eðlilegt að allt fari ekki eins og búist er við. Þegar það gerist eru dómararnir tilbúnir að leggja jafnvel enn harðar að sér til að vera sem best undirbúnir fyrir næsta leik,“ sagði Collina. Hann segir engan fót fyrir ásökunum um dómarasvindl á HM og segir forseta sambandsins, Gianni Infantino, hafa sýnt dómurum mótsins mikinn stuðning. „Auðvitað verða uppbyggilegar umræður um ákvarðanir alltaf hluti af fótboltanum en tilhæfulausar ásakanir eiga ekki erindi í íþróttina okkar. Enginn getur dregið heilindi dómaranna á HM í efa. Þegar það gerist getur það leitt til hótana í garð þeirra og fjölskyldna þeirra sem er ekki rétt,“ sagði Collina. „Sömuleiðis getur enginn haldið því fram að hægt sé að hafa áhrif á dómgæslu FIFA, ekki einu sinni forseti sambandsins. Hann hefur alltaf sýnt dómarahópnum fullan stuðning og treyst okkur til að vinna af fullkomnu sjálfstæði. Dómarar taka heiðarlegar ákvarðanir og rétt eins og leikmenn og þjálfarar reyna þeir alltaf að gera sitt besta.“ Meira hefur borið á umræðu um dómgæsluna á HM eftir að útsláttarkeppnin hófst, sérstaklega eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti beitti sér fyrir því að banni bandaríska framherjans, Folarins Balogun, yrði aflétt.
HM 2026 í fótbolta FIFA Tengdar fréttir Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Didier Deschamps, þjálfari franska fótboltalandsliðsins, kippir sér lítið upp við það þótt dómarar leiksins gegn Marokkó í átta liða úrslitum á HM komi frá Argentínu. 9. júlí 2026 07:30 Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Fifa hefur sett af stað rannsókn vegna kynþáttahaturs í garð áhrifavaldsins IShowSpeed frá stuðningsmanni Argentínu. Atvikið gerðist í leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. 8. júlí 2026 16:17 Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM Mostafa Zico, leikmaður Egyptalands, sagði eftir tapið gegn Argentínu að það væri ljóst að mótið væri spillt. Hann sagði að dómarinn hefði ekki verið sanngjarn í ákvörðunartöku leiksins. 8. júlí 2026 09:30 Lygilegur viðsnúningur Argentínu Argentína vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur á Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM í Atlanta í Bandaríkjunum. Ríkjandi heimsmeistarar skoruðu þrjú mörk á 15 mínútum til að snúa leiknum á haus. 7. júlí 2026 18:05 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira
Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Didier Deschamps, þjálfari franska fótboltalandsliðsins, kippir sér lítið upp við það þótt dómarar leiksins gegn Marokkó í átta liða úrslitum á HM komi frá Argentínu. 9. júlí 2026 07:30
Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Fifa hefur sett af stað rannsókn vegna kynþáttahaturs í garð áhrifavaldsins IShowSpeed frá stuðningsmanni Argentínu. Atvikið gerðist í leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. 8. júlí 2026 16:17
Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM Mostafa Zico, leikmaður Egyptalands, sagði eftir tapið gegn Argentínu að það væri ljóst að mótið væri spillt. Hann sagði að dómarinn hefði ekki verið sanngjarn í ákvörðunartöku leiksins. 8. júlí 2026 09:30
Lygilegur viðsnúningur Argentínu Argentína vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur á Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM í Atlanta í Bandaríkjunum. Ríkjandi heimsmeistarar skoruðu þrjú mörk á 15 mínútum til að snúa leiknum á haus. 7. júlí 2026 18:05