„Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Andri Broddason skrifar 9. júlí 2026 13:00 Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, segir tækifæri í Evrópukeppni fyrir Stjörnuna. Liðið er í nýrri treyju og býst hann við góðri mætingu frá stuðningsmönnum. Sigurjón/Vísir Stjarnan hefur sitt Evrópuævintýri í kvöld þegar liðið tekur á móti Víkingi frá Færeyjum í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, er bjartsýnn fyrir leikinn og segir að það sé gott að fá smá pásu frá Bestu deildinni. „
Fínt að kúpla sig aðeins úr deildarkeppninni hjá okkur og fá nýja mótherja. Menn voru ferskir á æfingu þannig að við náum vonandi að spila okkar besta leik og sýna úr hverju við erum gerðir.“ Gengi Stjörnunnar í Bestu deild karla hefur ekki staðist væntingar og er liðið sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar með fimmtán stig. Guðmundur segir að gott gengi í Evrópukeppni geti bjargað annars lélegu tímabili. Klippa: Guðmundur Kristjánsson fyrir fyrsta leik í Evrópukeppni „Við ætlum okkur áfram og það væri bæði gott fyrir leikmenn og klúbbinn sem heild að komast áfram. Þetta er keppni sem við viljum komast eins langt og við getum í og það eru möguleikar fyrir hendi. Við stefnum á sigur hér en tímabilið hingað til hefur ekki verið það sem við sáum fyrir okkur, en góður árangur í Evrópu myndi klárlega hjálpa til við að bæta það. Guðmundur segist ekki ætla að blanda sér í stjórnunarhætti liðsins en ætlar að leggja sig allan fram á vellinum. Mikilvægt er að taka aðeins einn leik í einu og er liðið meðvitað um það. Ánægður með nýjan þjálfara og sterkur mótherji Jón Þór Hauksson var ráðinn sem þjálfari Stjörnunnar fyrir tæpum mánuði og er Guðmundur ánægður með hans innkomu í liðið. „Hann hefur komið með góða nærveru og sínar áherslur. Vonandi vinnum við fleiri fótboltaleiki núna, það væri óskandi en Jón Þór hefur komið flottur inn.“ Mótherji Stjörnunnar er Víkingur frá Færeyjum en það lið er sem stendur í fjórða sæti færeysku úrvalsdeildarinnar. Guðmundur býst við erfiðum leik frá sterkum andstæðingi. „Við höfum séð þá á klippum og vitum hvernig þeir vilja spila. Við eigum því að þekkja leikstílinn þeirra. Það verður gaman að sjá hvar íslensku liðin standa gagnvart þeim færeysku styrkleikalega séð. Við ætlum okkur áfram en það er undir okkur komið að sýna það á vellinum.“ Guðmundur vonar innilega að þrátt fyrir vonbrigðartímabil í deildinni fjölmenni stuðningsmenn Stjörnunnar á leiki Evrópukeppninnar. Mikilvægt er fyrir liðið að fá góðan stuðning á heimavelli. „Evrópuleikur, nágrannarnir í heimsókn, glæný og falleg treyja og vonandi verður bara geggjað veður. Fólk hlýtur að fjölmenna á völlinn og fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat.“
Stjarnan Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira