Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Andri Broddason skrifar 9. júlí 2026 09:32 Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, býst við hörkuleik gegn Víkingi frá Færeyjum í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Vísir/Sigurjón Stjarnan mætir Víking frá Færeyjum í undankeppni Sambandsdeildarinnar í dag. Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar segir leikinn vera gott tækifæri til þess að bæta tímabil Stjörnunnar sem hefur ekki staðist væntingar.
Jón Þór Hauksson segir að það sé spenningur í hópnum en leikmennirnir séu vel undirbúnir og klárir í slaginn. Hann segist þó ekki ætla að fórna deildinni fyrir leikina í Evrópukeppninni. „Við fórnum engu fyrir Evrópu en við leggjum allt í sölurnar. Við ætlum okkur góða hluti í Evrópukeppninni og höldum áfram að bæta gengi liðsins, það er númer eitt, tvö og þrjú. Klippa: Jón Þór fyrir Evrópukeppnina Gengi Stjörnunnar í Bestu deild karla hefur ekki staðist væntingar og er liðið í sjöunda sæti deildarinnar með fimmtán stig. Jón Þór segir að það sé fínt að fá pásu frá deildinni. „Evrópukeppnin kemur núna á tíma sem leyfir okkur að hleypa smá sólskini inn í tímabilið. Þetta er ný keppni og öðruvísi verkefni og það er mikil tilbreyting í því og það getur virkað sem vítamínsprauta inn í okkar tímabil.“ Áhersla á skammtímamarkmið Jón Þór hefur ekki verið lengi í starfi en hann gekk í raðir Stjörnunnar síðastliðinn júní. Stefna hans er að horfa á liðið dag frá degi og bæta stöðu liðsins sem var ekki góð þegar hann tók við. „Markmiðin sem við erum að vinna með núna er að snúa genginu við. Við erum að horfa á einn leik í einu og koma okkur á sigurbraut. Það er ekkert launungarmál að Stjarnan ætlaði sér stóra hluti í deildinni í sumar sem hefur ekki gengið eftir. Eðlilega hafa þau markmið verið endurskoðuð og við erum að vinna með skammtímalausnir í því.“ Mótherji Stjörnunnar í dag er Víkingur frá Færeyjum en liðið er sem stendur í fjórða sæti færeysku úrvalsdeildarinnar. Jón Þór býst við hörkuleik og segir frændurna frá Færeyjum vera sterka. „Þeir eru sterkir og þetta er öflugt lið. Þeir spila góðan fótbolta og við erum að fara í mjög verðugt verkefni. Við skulum ekki gleyma því að færeysku liðin eru í hærri stigaflokki en þau íslensku í Evrópu. Færeyskur fótbolti er búinn að vera á uppleið í langan tíma en það eru möguleikar í stöðunni sem við ætlum að nýta okkur á morgun.“ Að lokum segir Jón Þór að það sé mikil hefð fyrir Evrópukeppnum hjá Stjörnunni og stuðningsmenn kunni að búa til stemningu á vellinum. Hann býst ekki við öðru en að það verði mikill stuðningur í stúkunni.
Stjarnan Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira