Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Hjörvar Ólafsson skrifar 7. júlí 2026 22:21 Sölvi Geir Ottesen þungt hugsi á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Pawel Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var afar sáttur við spilamennsku liðsins þegar það lagði Gyori ETO að velli með einu marki gegn engu í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld. Sölvi Geir er hins vegar afar ósáttur við gervigrasið á heimavelli Víkings sem hann telur vera sökudólginn hnémeiðslum Elíasar Más Ómarssonar. „
Frammistaðan í þessum leik var til fyrirmyndar og við náðum á löngum köflum að pinna þá niður, skapa aftur og aftur hættulegar stöður og fengum klárlega nokkur færi til þess að skora fleiri mörk. Það er stórt hrós á okkur að sjá hversu varfærnir ungversku meistararnir mættu til leiks hér í kvöld en það kom mér vissulega á óvart,“ sagði Sölvi Geir að leik loknum. „Það er vissulega græðgi að fara fram á stærri sigur en eins og leikurinn þróaðist þá hefðum við klárlega átti skilið að skora fleiri mörk. Aftur á móti var sætt að sjá Niko skora og sjá til þess að við værum allavega einu marki yfir fyrir seinni leikinn,“ sagði hann enn fremur. „Meiðslin hjá Elíasi Má settu svartan blett á annars frábært kvöld. Elías Már festir takkana í gömlu og handónýtu gervigrasi sem okkur er boðið upp á hér í Víkinni. Við erum nýbúin að missa leikmann í kvennaliðinu okkar í krossbandsmeiðsli og aðstaðan á þessum velli er til háborinnar skammar,“ sagði Sölvi afar ósáttur. „Þetta gervigras er löngu komið á tíma og Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig buxurnar. Víkingur er þessa stundina flaggberi Íslands í fótbolta í Evrópu og það er skandall að við séum að spila á jafn lélegum, og í raun hættulegum, velli og raun ber vitni. Það er ekki boðlegt hvernig aðstaðan er hérna í Víkinni,“ sagði þjálfarinn um völl Víkings. „Það er gulls ígildi að hafa jafn öflugan leikmann og Niko til þess að leysa Elías Má af hólmi. Markið sem hann skoraði var týpískt Niko-mark. Hann leggur sig allan fram fyrir liðið og var hugrakkur að setja höfuðið í boltann og skalla hann yfir línuna,“ sagði Sölvi. „Við áttum okkur á því að við erum að fara í erfiðan útileik og eins marks forysta er fljót að fara. Við þurfum að passa upp á að fara ekki út bara til þess að verja markið í 90 mínútur plús. Þar ytra þurfum við að freista þess að þora að halda í boltann, vera aggressívir í sóknarleiknum þegar færi gefst og gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma okkur áfram,“ sagði hann um seinni leikinn. Sölvi Geir Ottesen fagnar sigrinum með lærisveinum sínum. Vísir/Pawel
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira