Martínez hættur með portúgalska landsliðið Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júlí 2026 22:16 Roberto Martínez hefur sagt upp sem þjálfari Portúgals. Gualter Fatia/Getty Images Roberto Martínez hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem þjálfari Portúgals eftir að liðið féll úr leik gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM í kvöld.
Portúgal tapaði 1-0 á AT&T leikvanginum í Dallas í kvöld eftir að hafa sigrað Króatíu 2-1 í 16-liða úrslitum og endað í öðru sæti í riðli liðsins á eftir Kólumbíu. „Þetta er endirinn á þessu verkefni. Það er mikilvægt að fá nýja rödd og nýjan leiðtoga,“ sagði Martínez eftir leikinn gegn Spáni í kvöld. „Þetta var ekki ákveðið fyrirfram (að ég myndi hætta eftir mótið). Ég kom með það markmið að vinna HM, og þar sem ég vann ekki er óskynsamlegt að halda áfram,“ „Ég tek með mér minningarnar og vona að Portúgal eigi góðar minningar frá þeim þremur og hálfu ári sem ég var aðalþjálfari liðsins. Þetta var reynsla lífs míns.“ Martínez þjálfaði landslið Belgíu áður en hann tók við portúgalska liðinu. Undir hans stjórn hlaut Belgía brons á HM 2018 en hann stýrði þeim belgísku einnig á EM 2020 og HM 2022. Hann hætti eftir það mót og tók við Portúgölum sem hann stýrði á tveimur stórmótum, á EM 2024 og yfirstandandi heimsmeistaramóti. Áður var Martínez þjálfari Swansea, Wigan og Everton á Englandi.
HM 2026 í fótbolta Portúgalski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira