Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2026 09:02 Halastjarnan 3I/ATLAS (fyrir miðri mynd með daufum hala) á mynd VLT-sjónauka ESO 18. febrúar. ESO/O. Hainaut Sterkar vísbendingar eru um að halastjarna sem kom inn í sólkerfið okkar í fyrra hafi myndast í mun eldra sólkerfi en okkar. Þetta er í fyrsta skipti sem stjörnufræðingum hefur tekist að gera svo ítarlegar mælingar á utanaðkomandi fyrirbæri í sólkerfinu okkar. Halastjarnan 3I/ATLAS fannst síðasta sumar. Fljótt varð ljóst af ferli hennar að hún ætti uppruna sinn utan sólkerfisins. 3I/ATLAS var aðeins þriðja fyrirbærið sem fundist hefur í sólkerfinu sem staðfest hefur verið að hafi myndast utan þess. Fyrri tvö fyrirbærin sem fundust, 1l/'Oumuamua og 2l/Borisov, hentuðu illa til rannsókna. Enginn gashali greindist á eftir því fyrra og það seinna var of dauft. 3I/ATLAS er langbjartasta fyrirbærið af þessu tagi sem fundist hefur. Það gerði stjörnufræðingum kleift að efnagreina halastjörnuna og komast þannig nær uppruna hennar. Niðurstöðurnar benda til þess að 3I/ATLAS hafi myndast í ytra sólkerfi gamallar og málmsnauðrar stjörnu. Stjörnur af því tagi innihalda fá frumefni sem eru þyngri en helín og eru taldar hafa myndast þegar alheimurinn var mun yngri og minna var um þyngri frumefni, að því er segir í tilkynningu frá Evrópsku stjörnustöðinni á suðurhveli (ESO). Ólíkt málmiðnaðarmönnum líta stjörnufræðingar á öll frumefni sem eru þyngri en vetni og helín sem „málma“. Meirihluti allra þyngri frumefna urðu til við kjarnasamruna í stjörnum sem mynduðust í alheiminum eftir Miklahvell. Líklegt er því talið að 3I/ATLAS sé mun eldri en sólin okkar sem myndaðist fyrir um 4,5 milljörðum ára. „3I/ATLAS er virkilega spennandi tækifæri til þess að kanna samsetningu annars sólkerfis sem myndaðist löngu áður en sólin okkar og sólkerfið voru til,“ segir Rosemary Dorsey, meðhöfundur greinar um rannsóknina á halastjörnunni frá Háskólanum í Helsinki í Finnlandi. Geimurinn Vísindi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira
Halastjarnan 3I/ATLAS fannst síðasta sumar. Fljótt varð ljóst af ferli hennar að hún ætti uppruna sinn utan sólkerfisins. 3I/ATLAS var aðeins þriðja fyrirbærið sem fundist hefur í sólkerfinu sem staðfest hefur verið að hafi myndast utan þess. Fyrri tvö fyrirbærin sem fundust, 1l/'Oumuamua og 2l/Borisov, hentuðu illa til rannsókna. Enginn gashali greindist á eftir því fyrra og það seinna var of dauft. 3I/ATLAS er langbjartasta fyrirbærið af þessu tagi sem fundist hefur. Það gerði stjörnufræðingum kleift að efnagreina halastjörnuna og komast þannig nær uppruna hennar. Niðurstöðurnar benda til þess að 3I/ATLAS hafi myndast í ytra sólkerfi gamallar og málmsnauðrar stjörnu. Stjörnur af því tagi innihalda fá frumefni sem eru þyngri en helín og eru taldar hafa myndast þegar alheimurinn var mun yngri og minna var um þyngri frumefni, að því er segir í tilkynningu frá Evrópsku stjörnustöðinni á suðurhveli (ESO). Ólíkt málmiðnaðarmönnum líta stjörnufræðingar á öll frumefni sem eru þyngri en vetni og helín sem „málma“. Meirihluti allra þyngri frumefna urðu til við kjarnasamruna í stjörnum sem mynduðust í alheiminum eftir Miklahvell. Líklegt er því talið að 3I/ATLAS sé mun eldri en sólin okkar sem myndaðist fyrir um 4,5 milljörðum ára. „3I/ATLAS er virkilega spennandi tækifæri til þess að kanna samsetningu annars sólkerfis sem myndaðist löngu áður en sólin okkar og sólkerfið voru til,“ segir Rosemary Dorsey, meðhöfundur greinar um rannsóknina á halastjörnunni frá Háskólanum í Helsinki í Finnlandi.
Ólíkt málmiðnaðarmönnum líta stjörnufræðingar á öll frumefni sem eru þyngri en vetni og helín sem „málma“. Meirihluti allra þyngri frumefna urðu til við kjarnasamruna í stjörnum sem mynduðust í alheiminum eftir Miklahvell.
Geimurinn Vísindi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira