Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar 5. júlí 2026 15:02 Það reynir ekki á traust til lögmanna þegar allt gengur vel. Það reynir á það þegar borgari kvartar undan lögmanni og upplifir síðan í eftirlitsferlinu sömu óvissu og hann kvartaði undan. Þar liggur ein mikilvægasta traustsspurning réttarríkisins: Ef lögmenn eru hornsteinn réttarríkisins, hvernig tryggjum við að eftirlitið með þeim sé ekki aðeins til staðar, heldur einnig sýnilega skilvirkt, gagnsætt og traustvekjandi fyrir almenning? Í nýlegri grein Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar Íslands, var réttilega minnt á að dómstólar og lögmenn séu tveir hornsteinar réttarríkisins. Sjálfstæðir og óvilhallir dómstólar skera úr ágreiningi um lögin, en sjálfstæð og öflug lögmannastétt er nauðsynleg til þess að borgarar geti leitað réttar síns, varið hagsmuni sína og treyst því að réttindi þeirra séu virt. Þessi staða lögmanna er sérstök. Lögmenn eru ekki aðeins ráðgjafar á almennum þjónustumarkaði. Þeir njóta lögbundinnar stöðu, hafa einkarétt á tilteknum störfum fyrir dómi og koma oft að viðkvæmustu og mikilvægustu hagsmunum einstaklinga og fyrirtækja. Af því leiðir að traust til lögmanna er ekki einkamál lögmannastéttarinnar. Það er hluti af trausti almennings á réttarríkinu sjálfu. Benedikt benti einnig á mikilvægi skilvirks eftirlits með störfum lögmanna. Almenningur sem leitar til lögmanna verði að geta treyst því að þjónustan sé fullnægjandi og að þegar út af bregði verði brugðist við með afgerandi hætti. Þetta er kjarninn. Eftirlit með lögmönnum þarf ekki aðeins að vera til staðar. Það þarf að virka. Og það þarf að sjást að það virki. Stefán A. Svensson, formaður Lögmannafélags Íslands, tók þessa umræðu áfram í grein sinni um mikilvægi skilvirks eftirlits með störfum lögmanna. Þar benti hann réttilega á að sjálfstæði lögmannastéttarinnar krefjist þess að eftirlit með lögmönnum sé að verulegu leyti í höndum lögmannafélaganna sjálfra en ekki stjórnvalda. Það sjónarmið er mikilvægt. Óháð lögmannastétt er ekki sérhagsmunamál lögmanna, heldur vernd fyrir borgarann gagnvart ríkisvaldinu. En af því leiðir einnig rík ábyrgð. Sjálfseftirlit er aðeins traustvekjandi ef það er virkt, gagnsætt og skilvirkt. Ef almenningur á að treysta því að lögmannastéttin hafi sjálf burði til að hafa eftirlit með eigin störfum verður almenningur líka að geta séð að það eftirlit sé raunverulegt. Þar skiptir ekki aðeins máli að nefndir, reglur og úrræði séu til staðar á pappír. Það skiptir líka máli hvernig sá sem leitar til eftirlitsins upplifir ferlið. Ég skrifa þetta ekki sem lögfræðingur, heldur sem borgari og fyrirsvarsmaður félags sem hefur reynt á þetta kerfi. Þann 10. febrúar 2026 var móttekin formleg kvörtun sem ég sendi úrskurðarnefnd lögmanna vegna starfa tiltekins lögmanns. Kvörtunin laut ekki að ágreiningi um þóknun, heldur að meintri vanrækslu á hagsmunagæslu, töfum, samskiptaleysi og afhendingarleysi gagna. Kvörtunin var studd greinargerð, tímalínu, rökstuðningi og fylgigögnum. Þegar þetta er ritað, 5. júlí 2026, eru liðnir tæpir fimm mánuðir frá móttöku kvörtunarinnar og niðurstaða liggur ekki fyrir þrátt fyrir ítrekaða eftirfylgni. Ég fullyrði ekki hver efnisleg niðurstaða málsins á að vera. Það er úrskurðarnefndarinnar að meta en reynslan vekur eðlilega spurningar um fyrirsjáanleika, upplýsingagjöf og skilvirkni í eftirliti með lögmönnum. Spurningin er því ekki aðeins hvort eftirlit sé til staðar. Spurningin er hvernig sá sem stendur utan lögmannastéttarinnar á að upplifa það. Fær hann skýrar upplýsingar? Veit hann hvað gerist næst? Er honum sagt hvaða tíma málsmeðferð getur tekið? Fær hann reglulegar stöðuupplýsingar? Er sýnilegt að málið hreyfist áfram? Þetta eru ekki óeðlilegar kröfur. Þvert á móti ættu þær að vera lágmarkskröfur í samskiptum lögmanns við umbjóðanda sinn: að umbjóðandi fái skýrar upplýsingar, viti hvað gerist næst, hafi einhverja hugmynd um tímaferli, fái upplýsingar um stöðu máls og geti séð að hagsmunagæslan hreyfist áfram. Þess vegna verður traustsspurningin enn skýrari þegar kvörtun til úrskurðarnefndar lýtur einmitt að töfum, samskiptaleysi og afhendingarleysi gagna. Ef sá sem kvartar upplifir síðan í meðferð kvörtunarinnar sömu óvissu og hann kvartaði undan gagnvart lögmanninum þá er hætt við að eftirlitsferlið sjálft fari að skapa þá upplifun sem því er ætlað að bregðast við. Eftirlit sem á að viðhalda trausti má ekki verða spegilmynd þeirrar reynslu sem kvartað er undan. Þetta skiptir sérstaklega miklu þegar kvörtunin sjálf lýtur að töfum, samskiptaleysi og afhendingarleysi gagna. Ef kvörtun um slíka háttsemi bíður síðan mánuðum saman án niðurstöðu eða skýrrar upplýsingagjafar verður málsmeðferðin sjálf hluti af stærri traustsspurningu. Í réttarríki er ekki nóg að borgarinn geti lagt fram kvörtun. Hann þarf einnig að geta treyst því að kvörtunin fari í skýrt, virkt og fyrirsjáanlegt ferli. Það er ekki árás á lögmenn að spyrja hvernig það sé tryggt. Þvert á móti er það nauðsynleg spurning ef við viljum verja traust til lögmanna og þar með einn hornstein réttarríkisins. Sjálfstæði lögmanna er mikilvægt fyrir réttarríkið. En sjálfstæði án sýnilegrar ábyrgðar byggir ekki traust. Ef lögmenn vilja njóta þeirrar sérstöðu að hafa sjálfir ríkt hlutverk í eftirliti með eigin stétt, verður almenningur að geta séð að það eftirlit sé virkt, skiljanlegt og raunverulegt. Traust á lögmönnum verður ekki varið með því að biðja almenning um að treysta kerfinu. Það verður varið með því að sýna honum að kerfið sé traustsins vert. Höfundur er borgari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögmennska Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun