Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Lovísa Arnardóttir skrifar 3. júlí 2026 11:07 Hólmfríður var að hjóla yfir Kringlumýrarbraut inn á Laugaveg þegar ekið var á hana. Aðsend og Vísir/Vilhelm Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar á velferðarsviði, var sagt upp eftir að ekið var á hana á leið til vinnu. Hólmfríður er mikið slösuð en er á batavegi.
Vísir heyrði í Hólmfríði sem vísaði til færslu á Facebook um daginn örlagaríka. Hólmfríður Helga segir þar að hún hafi komist að því að henni hafi verið sagt upp, og öðrum, á meðan hún lá á bráðamóttöku Landspítalans. „Á fimmtudagsmorguninn, fyrir viku síðan í dag, lagði ég af stað hjólandi út í daginn. Ég var að rúlla yfir Kringlumýrarbrautina á grænum gönguljósum þegar ég var keyrð niður. Ég sá bílinn koma á fullri ferð og tíminn hægði á sér. Þegar höggið kom og meðan á fluginu stóð hugsaði ég: „Ég er að lenda í slysi núna. Verð að vanda mig og lenda vel.“ Stórundarleg lífsreynsla,“ segir Hólmfríður í færslu sinni. Færsla Hólmfríðar sem hún birti í gær. Facebook Nokkrum klukkustundum síðar hafi hún svo fengið fréttirnar um uppsögn hennar og annarra á sviðinu. „Ég er öll marin og blá frá toppi til táar, illa viðbeinsbrotin, með fjögur brotin rifbein og hluti tveggja hryggjarliða, þvertindarnir, eru brotnir. Svo fékk ég svokallað loftbrjóst og virkilega hressilega heilahristing. Ég er ansi aum og löskuð en vá, hvað ég er þakklát fyrir að vera á lífi. Ég er ótrúlega heppin að eiga góða batavon,“ segir hún og að hún sé afar þakklát fyrir að fjölskylda og vinir hafi veitt henni aðstoð og gleði í bata. Meðal þeirra er líka fólk sem hún kynntist í starfi sínu hjá borginni, í Ráðhúsinu og Borgartúni. „Ég vann á báðum stöðum og átti því óvenjustóran hóp vinnufélaga. Ef þið bara vissuð hvað það er margt frábært fólk að störfum barna, fólk sem vinnur verk sín vel og af metnaði, notar bæði heila og hjarta til þess. Það er ekki öllum gefið. Mun sakna þess að vinna með þeim en á þau sem vini áfram,“ segir hún og óskar svo eftir ráðleggingum um afþreyingu í batanum. Hólmfríður Helga var ráðin til Reykjavíkurborgar í maí árið 2020 og starfaði því þar í um sex ár. Fyrir það starfaði hún sem blaðamaður á Stundinni, RÚV og Fréttablaðinu. Tveir vinna til áramóta Alls var 18 sagt upp fyrir rúmri viku síðan á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, þar með talið öllum sjö upplýsingafulltrúum borgarinnar. Skipulagsbreytingar, sem voru samþykktar í borgarráði, höfðu alls áhrif á 27 stöðugildi og voru einhverjir færðir til í starfi. Fram hefur komið í fréttum í dag að tveir þeirra hafi verið beðnir að vinna til áramóta en í fréttum sama dag og greint var frá uppsögnum kom fram að ekki hefði verið óskað eftir vinnuframlagi fólks. Haft er eftir borgarstjóra í fréttinni að ofan að nýtt fyrirkomulag samskipta og miðla verði kynnt á næstunni.
Reykjavík Borgarstjórn Vistaskipti Heilbrigðismál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira