„Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. júlí 2026 18:58 Samdrátturinn á byggingamarkaði hefur gert það að verkum að fyrirtæki í geiranum eru farin að segja upp starfsfólki. Vísir/Sigurjón/Anton Brink Samdráttur í byggingariðnaði hefur gert það að verkum að fyrirtæki eru farin að horfa út fyrir höfuðborgarsvæðið í leit að verkefnum og þá bjóða margfalt fleiri í sama verkið nú en áður. Uppsagnir eru í geiranum og dæmi um að starfsmannafjöldi hafi helmingast hjá einu fyrirtæki.
Atvinnuleysi á byggingamarkaði hefur aukist umtalsvert síðustu mánuði og samkvæmt tölum Samtaka iðnaðarins voru 1158 atvinnulausir í maí samanborið við 896 í maí í fyrra, aukning um 29%. Á annað hundrað starfsmönnum hefur til að mynda verið sagt upp í pípulögnum undanfarið og dæmi eru um fyrirtæki þar sem starfsmönnum hefur fækkað um nokkra tugi. „Hvað viðkemur nýbyggingamarkaðnum, þá er verulegur samdráttur þar og menn eru að segja upp mannskap“ segir Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara. Fleiri bjóða í verk og fyrirtæki leita á landsbyggðina Staðan er verst hjá þeim sem vinna verk við nýbygginar. Og áhrifin eru margvísleg. „Þegar menn hafa verið að bjóða í verk þá hafa þetta verið tveir eða þrír að bjóða í sama verk. Nú er breyting á þessu og menn eru að sjá allt að fjórtán eða fimmtán fyrirtæki að bjóða í sama verkið.“ Dæmi eru um fyrirtæki sem bjóði undirverð í verkefni og að fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leiti annað. „Menn sem eru með fyrirtæki hér á höfuðborgarsvæðinu eru farin að bjóða í verk úti á landi, víðsvegar um land. Þetta er breyting sem hefur ekki verið áður að menn eru farnir að leita út fyrir höfuðborgarsvæðið til að halda einhverri lágmarksveltu til að missa ekki mannskapinn.“ „Þetta er starfsemi sem er erfitt að endurræsa“ Þá sé erfiðara fyrir nema að komast á samning hjá meistara. Störfin sem standi eftir, t.d. í laxeldi eða gagnaverum séu of sérhæfð. „Það hefur haldist vel í hendur að taka inn nema í þessar nýbyggingar, byrja þar og í þessum viðgerðum og breytingum. En að fara í þessi sérhæfðari verkefni, það er aðeins erfiðara í dag.“ Böðvar kallar eftir aðgerðum stjórnvalda sem þurfi að stíga inn með aðgerðir sem lækki stýrivexti og dragi úr verðbólgu. Óveðursský séu á lofti í haust og markaðurinn megi ekki kólna enn frekar. „Þetta er starfsemi sem er erfitt að endurræsa, það er svo mikið undir þegar svona stórar byggingaframkvæmdir koðna niður og það er erfitt að ræsa það aftur.“
Byggingariðnaður Vinnumarkaður Húsnæðismál Stéttarfélög Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira