Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar 30. júní 2026 17:01 Sumarið er ferðatími landsmanna og sífellt fleiri kjósa að njóta frelsisins sem fylgir hjól- og fellihýsum, húsbílum og tjald útilegum. Þessi ferðamáti býður upp á einstaka upplifun en um leið fylgja honum ákveðnar hættur sem mikilvægt er að hafa í huga. Eldur í ferðavagni getur breiðst mjög hratt út. Byggingarefni þeirra eru þess eðlis, rýmið lítið og þar eru gjarnan gasbúnaður, rafmagnstæki og rafhlöður í notkun. Þegar eldur kemur upp geta því örfáar mínútur skipt sköpum. Áður en lagt er af stað er mikilvægt að yfirfara gasbúnað, rafmagnskerfi og tengingar. Eins er mikilvægt að bæði reyk- og gasskynjarar séu til staðar og slökkvitæki aðgengilegt.Einnig er æskilegt að hafa eldvarnateppi innan handar. Athuga þarf reglulega hvort skemmdir séu á rafmagnssnúrum, hleðslubúnaði eða gastengingum og bregðast tafarlaust við ef vart verður við óvenjulega lykt, hita eða bilanir. Við notkun grilla og opins elds þarf að sýna sérstaka aðgát. Grill skulu vera á stöðugu undirlagi öruggri fjarlægð frá ferðavögnum, fortjöldum, gróðri og öðru eldfimu efni. Aldrei ætti að skilja grill eftir án eftirlits og gæta þarf þess að glóð og aska séu að fullu slökkt áður en svæðið er yfirgefið. Skipulag tjaldsvæða gegnir mikilvægu hlutverki í brunavörnum. Samkvæmt leiðbeiningum um brunavarnir á tjald- og hjólhýsasvæðum skal vera að minnsta kosti 4 metra bil milli eininga. Það dregur úr líkum á að eldur breiðist frá einni einingu til annarrar og auðveldar viðbragð ef eldur kemur upp. Jafnframt þarf að tryggja að aðkomuleiðir fyrir viðbragðsaðila séu greiðar og að ekki sé geymt eldfimt efni á milli eininga. Á undanförnum árum hefur notkun rafmagns á tjaldsvæðum aukist verulega. Sérstaka athygli þarf að veita rafmagnstengingum, framlengingarsnúrum og rafmagnskeflum. Mikilvægt er að nota eingöngu vandaðar og viðurkenndar snúrur sem ætlaðar eru til útinotkunar og þola það álag sem þeim er ætlað að bera. Huga þarf að öryggi fólks vegna beinnar snertingar við jörð, mögulegra skemmda á lögnum vegna tjaldhæla eða jarðfestinga og umferðar þungra farartækja. Eins geta ytri aðstæður á tjaldsvæðum verið erfiðar rafbúnaði sökum veðurs, vinda og umgengni. Það er því afar mikilvægt að notaður sé rafbúnaður sem hæfir aðstæðum og uppsetning og frágangur sé með fullnægjandi hætti. Skoða þarf reglulega ástand og virkni búnaðarins til að tryggja öryggi þeirra sem tjaldsvæðin nota. Sé rafmagnskefli notað þarf ávallt að vinda snúruna alveg af keflinu meðan rafmagn er tekið af því. Þegar mikill straumur fer um snúru sem er áfram upprúlluð getur myndast veruleg hitamyndun sem getur skemmt einangrun og í versta falli valdið bruna. Einnig þarf að gæta þess að snúrur liggi ekki þannig að þær verði fyrir hnjaski, klemmist undir hjólum eða verði fyrir raka sem getur aukið hættu á bilunum. Hleðsla rafhlaðna og rafknúinna tækja hefur einnig aukist verulega. Mikilvægt er að nota vottaðan búnað, fylgja leiðbeiningum framleiðenda og skilja hleðslu ekki eftir án eftirlits í langan tíma. Góðar brunavarnir snúast fyrst og fremst um fyrirhyggju. Með reglulegu eftirliti, öruggri notkun gas- og rafbúnaðar og virðingu fyrir öryggisreglum á tjaldsvæðum getum við öll stuðlað að öruggara ferðasumri. Njótum sumarsins með brunavarnir í fyrirrúmi. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá TM Tryggingum og sendi greinina inn fyrir hönd Eldvarnabandalagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Slysavarnir Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar