„Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Freyja Þórisdóttir skrifar 28. júní 2026 17:21 Alfreð Ásberg Árnason hjá Sambíóunum segir kominn tíma á opna og heiðarlega umræðu um framtíð íslenska kvikmyndageirans. Elísabet Blöndal/Vísir/Vilhelm Margt og mikið hefur verið skrifað um kvikmyndagerð á Íslandi síðustu ár og oft er talað um frost, vetur eða annað slíkt í greininni. Alfreð Ásberg Árnason hefur verið viðloðinn kvikmyndageirann í áraraðir en hann kemur úr fjölskyldu sem hefur verið í bíórekstri frá árinu 1937 og er sjálfur framkvæmdastjóri Sambíóanna. Hann segir óvenju hljótt hafa verið í íslenskri kvikmyndagerð að undanförnu og spyr hvort ekki sé kominn tími á að rísa upp og standa vörð um greinina.
Í færslu sem Alfreð birti á Facebook-síðu sinni í gær, laugardaginn 27. júní, segir hann fólk í kvikmyndagreininni bíða óþreyjufullt eftir því að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, „marki skýra framtíðarsýn fyrir íslenska kvikmyndagerð“. Greinin eigi það skilið og fólkið sem starfi í henni einnig. Í samtali við blaðamann fréttastofunnar segir Alfreð einnig að sú spurning sem hann telji að brenni á vörum flestra í greininni sé hvað ráðherrann hyggist gera til að styrkja greinina. „Það er búið að reikna þetta út að þótt ríkið komi með stóra hluta fjármögnunarinnar skilar það sér margfalt til baka,“ segir hann og bendir á að kvikmyndaiðnaðurinn sé mikilvæg útflutningsgrein og verðmæt landkynning fyrir Ísland. Grefur undan því sem byggt hafði verið Hann segir þó stöðuna sem upp hafi komið vera áhyggjuefni. Örfáar íslenskar myndir séu væntanlegar á næstunni og þær séu að mestu fjármagnaðar erlendis frá eða af þeim sem standi sjálfir að framleiðslunni. „Það er ekkert mikið af myndum að koma á íslensku,“ segir hann en nefnir tvær þeirra sem koma út á næstunni en það eru Hvar er draumurinn með Stebba Hilmars og önnur kvikmynd um Napóleon-skjölin, sem hann segir að mestu leyti framleidda fyrir erlent fjármagn. Að mati Alfreðs er það mikill missir fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað og kvikmyndahús landsins að fjármagn fáist ekki til framleiðslu hér heima. Í Facebook-færslunni gagnrýnir hann jafnframt ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. „Ákvarðanir nýrrar ríkisstjórnar um að draga úr stuðningi við greinina eru að grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum. Þetta snýst ekki aðeins um framleiðendur eða leikstjóra. Þetta snýst um allt vistkerfið, kvikmyndagerðarfólk, framleiðslufyrirtæki, tæknifólk, kvikmyndahús og streymisveitur,“ skrifar hann. Fólk týnist úr greininni Í samtalinu segir hann að að einhverju leyti hafi verið „togað í handbremsuna“. Að hans mati verða íslenskar kvikmyndir að njóta nægilegs fjárstuðnings til að geta staðist samkeppni við erlenda framleiðslu. „Það vantar bara að ríkið komi inn í þetta,“ segir hann og bætir við að margir í greininni hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar ekki varð af þeim áætlunum sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra, hafði kynnt um að efla greinina. Alfreð segir jafnframt að þróunin hafi orðið til þess að reynslumikið fagfólk sé farið að hverfa úr greininni. „Það er vont að fólk sé farið að týnast úr greininni sem er með þekkingu og orðið gott í því sem maður er að gera og löppunum sé kippt undan því.“ Mikilvæg útflutningsgrein Hann segir málið þó ekki aðeins snúast um fjármögnun kvikmynda heldur einnig þau verðmæti sem greinin skapi fyrir íslenskt samfélag. Kvikmyndaiðnaðurinn sé mikilvæg útflutningsgrein og öflug landkynning sem geti skilað miklum tekjum til baka. Til marks um þann alþjóðlega áhuga sem Ísland njóti sem tökustað rifjar hann upp fund með forsvarsmönnum Paramount þegar stórmynd var í tökum hér á landi. „Ég var á fundi hjá Paramount og þá voru þeir að skjóta myndina heima og þeir bara trúðu því ekki að efnið sem þeir voru að sjá væri hrátt, sko, bara landslagið. Þeir bara trúðu þessu ekki,“ segir Alfreð og nefnir stórmyndirnar The Odyssey og Supergirl, sem báðar hafa verið í tökum hér á landi undanfarnar vikur. Að hans mati sé því enn mikilvægara að stjórnvöld styðji við greinina svo hún geti nýtt þau tækifæri sem felast í vaxandi áhuga á Íslandi sem tökustað. Hann rifjar jafnframt upp að áður hafi kvikmyndagerðarmenn jafnvel lagt eigið fé og eignir undir til að koma verkefnum sínum í framkvæmd. „Þetta er eins og í gamla daga. Þráinn Bertelsson veðsetti húsið sitt fyrir myndina sína,“ segir Alfreð og bætir við: „En nei, það er ekkert lengur svoleiðis í dag.“
Kvikmyndagerð á Íslandi Menning Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Fyrsta myndefnið úr Ódysseifskviðu, næsta stórvirki leikstjórans Christopher Nolan er mætt á netið í fyrstu stiklu myndarinnar. Myndin var að hluta tekin upp hér á landi síðasta sumar þegar fréttir bárust ótt og títt af stórstjörnum í miðbæ Reykjavíkur. Horfa má á stikluna neðst í fréttinni. 22. desember 2025 15:29 Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira
Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Fyrsta myndefnið úr Ódysseifskviðu, næsta stórvirki leikstjórans Christopher Nolan er mætt á netið í fyrstu stiklu myndarinnar. Myndin var að hluta tekin upp hér á landi síðasta sumar þegar fréttir bárust ótt og títt af stórstjörnum í miðbæ Reykjavíkur. Horfa má á stikluna neðst í fréttinni. 22. desember 2025 15:29