„Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Agnar Már Másson skrifar 26. júní 2026 11:39 Þessir ungu menn fóru upp í Fálkaklett um miðja nótt og gengu þar um án nokkurs öryggisbúnaðar. Klettastígurinn Fálkaklettur í Esju er svokallað via ferrata, þar sem klifrarar eiga að vera festir í vír. Facebook Fjallaleiðsögumanni brá verulega í brún þegar hann sá að tveir ungir menn höfðu haldið upp í Fálkaklett án nauðsynlegs búnaðar um miðja nótt í fyrrinótt. Þó að hann þekki það sjálfur að hafa verið ungur og vitlaus segir hann athæfi ungu mannanna stórhættulegt og geta hafa endað í stórslysi. „
Þessir menn stofnuðu lífi sínu í hættu,“ skrifaði leiðsögumaðurinn Haraldur Örn Ólafsson, sem á Fjallafélagið sem býður upp á ferðir í Fálkakletti, en hann vakti athygli á athæfinu á Facebook. Í samtali við Vísi segir Haraldur að um verulega hættulega leið sé að ræða ef maður er ekki með réttan öryggisbúnað og fastur í vír. „Það er mikið verið að fara hérna með okkur, allir með öryggisbúnað, öryggið er náttúrulega númer eitt, tvö og þrjú í svona. Það er verið að fara upp í háa kletta. Við erum búin að setja upp alveg gríðarlega öflugt kerfi og svo lengi sem þú ert með réttan öryggisbúnað og gerir hlutina rétt, annaðhvort með leiðsögumanni [eða sjálfur], þá er þetta öruggt,“ segir Haraldur við Vísi. „En þarna var farið um miðja nótt, greinilega vitandi að þetta væri ekki alveg samkvæmt reglunum, og enginn öryggisbúnaður og leiðin öll farin, sem er stórhættulegt,“ bætir hann við. Það sé ekki aðeins brúin sem sé hættuleg heldur séu hættulegir kaflar víða á leiðinni. „Við bara verðum að koma þessum skilaboðum út: að þetta bara má ekki verða eitthvað fordæmi.“ Hann biðlar til fólks að gæta að eigin öryggi. „Ekki gera eitthvað svona óskynsamlegt,“ segir Haraldur. „Þetta er líka verkefni sem hefur kostað alveg gríðarlega fjármuni og það er náttúrulega eðlilegt bæði að virða reglurnar en líka greiða fyrir aðganginn. „Ég hef líkt þessu svona við golfvöll; þú myndir ekki fara bara inn á golfvöll og byrja að spila. Það er öllum frjálst að fara hérna um. En ef þú ætlar að nota þennan búnað, klifurvír, brú og allt þetta, þá þarftu að fylgja þeim reglum sem um það gilda.“ Hann segir að um svokallaða stálleið sé að ræða (ít. „via ferrata“) þar sem vír er lagður í kletta sem klifrarar festa sig við, svo að bæði vanir og óvanir geti farið örugglega upp klettinn. „Þetta er kannski ekkert ósvipað svona adrenalíngörðum og ævintýragörðum og þannig. Það er bara öryggisbúnaður sem fylgir. Og það segir sig sjálft ef þú ferð upp í einhvern svona ævintýragarð eða adrenalíngarð, sem er með engan öryggisbúnað, það er bara ekki öruggt og það er stórhættulegt,“ segir hann. „Og það bara gildir það sama um þetta. Þú ert í mikilli hæð. Ef eitthvað myndi gerast þá væri það bara stórslys,“ bætir hann við. Hann segist þó ekki endilega beina spjótum sínum að þessum ungu mönnum sérstaklega. „Maður var einu sinni ungur og vitlaus og gerði margt heimskulegt. En við verðum bara að koma þessum skilaboðum út: að bara í guðanna bænum, ekki apa eftir þessu.“
Klifur Öryggi á ferðamannastöðum Esjan Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Fleiri fréttir Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Sjá meira