Innlent

Mikill reykur frá brennandi bíl í Foss­vogi

Agnar Már Másson skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út vegna elds sem kom upp í bíl í Fossvogi í Reykjavík í kvöld.

„Það er eldur í bíl. Við erum búin að senda tvær stöðvar,“ segir varðstjóri slökkviliðs í samtali við Vísi.

Hann segir að slökkviliðsmenn hafi verið nýmættir á vettvang þegar Vísir hafði samband við varðstjóra rétt fyrir klukkan 21 í kvöld. 

Fréttastofu barst ábending um að stór dökkur reykstrókur sæist í Fossvoginum.



„Það rýkur töluverður reykur úr bílnum,“ bætir varðstjórinn við en segir að það sé afar algengt í bílbruna að mikill reykur verði. Hann vildi ekki tilgreinar nánar hvar edsvoðinn væri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×