Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar 22. júní 2026 14:52 Við notkun gervigreindar í ráðningum er að ótal þáttum að huga. Í dag getur umsóknum einstaklinga um laus störf verið hafnað áður en nokkur manneskja hefur skoðað þær. Ástæða höfnunarinnar er ekki endilega skortur á hæfni einstaklings heldur mat gervigreindar sem flokkar umsóknir á örfáum sekúndum og ákveður hverjir komast áfram í ráðningarferlinu. Fyrir vinnustaði er tímasparnaður og lægri kostnaður við ráðningar augljós kostur. Almenn gervigreind getur farið yfir hundruð umsókna á stuttum tíma, greint mynstur í ferilskrám og veitt stjórnendum stuðning við ákvarðanatöku. Hún getur því sannarlega sparað mikinn tíma og kostnað. En þegar ákvarðanir sem hafa áhrif á framtíð fólks eru teknar með stuðningi gervigreindar, vakna jafnframt mikilvægar spurningar um ábyrgð, sanngirni og traust. Það er nefnilega alls ekki nóg að líta til þess hvernig gervigreindin geti einfaldað ráðningarferla heldur er mikilvægt að tryggja að henni sé beitt á ábyrgan hátt. Ein stærsta áskorunin við notkun gervigreindar í ráðningum er að hún lærir af gögnum fortíðarinnar. Sem dæmi má nefna að ef vinnustaður hefur í gegnum tíðina ráðið starfsfólk með ákveðin einkenni oftar en aðra, t.d. Íslendinga á aldrinum 30-40 ára, er mjög líklegt að gervigreindin læri að tengja þau einkenni við kröfuna „bestu umsækjendur“, jafnvel þótt þau hafi engin tengsl við þá hæfni sem þarf í starfið. Þetta þarf ekki að vera vegna þess að tæknin sé gölluð. Niðurstöðurnar endurspegla einfaldlega þau gögn sem gervigreindin hefur úr að moða. Umræðan um gervigreind í ráðningum á því alls ekki að snúast um hvort gervigreind geti metið umsóknir hraðar en fólk eða sparað fólki vinnu við mat á umsækjendum. Hún þarf að snúast um hvort hægt sé að treysta niðurstöðunum og á hverju þær eru byggðar. Nýjar leikreglur Evrópusambandið skilgreinir ráðningakerfi sem nota gervigreind á meðal þeirra kerfa sem geta haft hvað mest áhrif á grundvallarréttindi einstaklinga (e. High risk) í gervigreindarreglugerð sinni, AI Act. Þessi skilgreining leggur miklar skyldur á herðar þeirra sem þróa slík kerfi. Á mörgum vinnustöðum hefur gervigreind verið innleidd með áherslu á skilvirkni og afköst. Með AI Act færist áherslan hins vegar yfir á ábyrgð, gagnsæi og rekjanleika. Hönnuðir kerfa eða verkferla sem nýta gervigreind við ráðningar þurfa að geta útskýrt hvernig niðurstöður verða til, sýnt fram á að markvisst sé unnið gegn mismunun og tryggt að mannlegt eftirlit með gervigreindinni sé til staðar. Hafandi unnið að þróun ráðningarlausnar sem nýtir gervigreind hef ég komist að þeirri niðurstöðu að stærsta áskorunin snýst sjaldnast um tæknina sjálfa. Hún snýst um að skilja hvað við erum raunverulega að mæla þegar við metum og pörum einstaklinga við störf og hvernig við tryggjum að niðurstöðurnar séu bæði sanngjarnar og marktækar og síðast en ekki síst, skili betri ráðningum en áður. Þeir sem þróa og innleiða gervigreindarlausnir fyrir ráðningar þurfa því bæði að skilja tæknina en ekki síst þau sálfræðilegu og faglegu sjónarmið sem liggja að baki góðum ráðningum. Ábyrgðin felst ekki aðeins í því að byggja kerfi sem getur unnið úr gögnum, heldur að tryggja að niðurstöðurnar séu rekjanlegar, gagnsæjar og studdar viðurkenndum aðferðum við mat á persónubundnum eiginleikum fólks sem raunverulega skipta máli við árangur í starfi. Þegar gervigreind er notuð til að meta umsækjendur verður sérþekking í mannauðsmálum, ráðningum og mælingum á hæfni ekki síður mikilvæg en tæknileg þekking. Annars er hætt við að hraðinn aukist á kostnað gæðanna. Réttindi umsækjenda Þessu til viðbótar gleymast þeir einstaklingar sem verið er að meta oft í umræðunni um gervigreind í ráðningum. Umsækjendur eru ekki einfaldlega gögn í kerfi heldur fólk með lögvarin réttindi. Þeir eiga rétt á að vita þegar gervigreind er notuð við mat á umsóknum þeirra. Þeir eiga einnig rétt á upplýsingum um hvernig niðurstöður verða til og að tryggt sé að mannleg aðkoma sé til staðar við ákvarðanatöku sem getur haft áhrif á starfsframa þeirra. Mikilvægi þess að leggja áherslu á ofangreint fer ekki síður vaxandi í ljósi þess að traust verður sífellt stærri þáttur í upplifun fólks á ráðningaferlinu. Umsækjendur sætta sig skiljanlega síður við að fá neikvæða niðurstöðu ef engar skýringar fylgja eða ef óljóst er hvernig matið fór fram. Frá ferilskrá yfir í persónubundið mat Ferilskrár og kynningarbréf eru enn og hafa lengi verið grundvöllur gagna við ráðningar. Þau segja þó fyrst og fremst sögu um fortíðina, sögu sem átti sér stað í ólíku umhverfi, verkefnum og teymi og í dag segja þau jafnvel sögu sem rituð er af gervigreind. Slík gögn veita því mjög takmarkaða innsýn í möguleika einstaklings til að ná árangri í tilteknu hlutverki, innan ákveðins teymis eða starfsumhverfis. Vitneskjan um óáreiðanleika þessara gagna eykur enn mikilvægi þess að styðja niðurstöður gervigreindar með sjálfstæðum og sannreyndum mælitækjum sem meta hæfni, getu og persónubundna eiginleika á stöðugan hátt. Slík nálgun er líklegust til að auka nákvæmni ráðninga og draga úr hættu á að niðurstöður gervigreindar byggist á takmörkuðum gögnum, gömlum skekkjum eða hlutdrægni. Hún gerir stjórnendum jafnframt kleift að byggja ákvarðanir sínar á fleiri þáttum en þeim upplýsingum sem koma fram í ferilskrá eða þeim mynstrum sem gervigreind greinir í sögulegum gögnum. Áhrif persónubundinna þátta hafa stöðugt sterkari áhrif á gæði ráðninga og eru mælanlegir með sannreyndum hætti án þess að gervigreind skekki niðurstöður. Þar liggur að mínu mati eitt stærsta tækifærið við mönnun starfa, að nýta gervigreind ekki sem staðgengil mannlegrar dómgreindar, heldur sem öflugt verkfæri sem með sannreyndum matstækjum styður við hlutlægara, faglegra og réttlátara mat á fólki, óháð bakgrunni. Slík nálgun jafnar ekki aðeins aðgengi fólks að störfum heldur minnkar þá gífurlegu sóun sem felst í vannýttum mannauði í hagkerfinu. Traust verður samkeppnisforskot Vinnustaðir sem geta sýnt fram á gagnsæi, sanngirni og rekjanleika í ráðningum munu njóta aukins trausts frá umsækjendum, stjórnendum og öðrum aðilum atvinnulífsins. Á sama tíma munu vinnustaðir sem treysta á óskýrar eða illa skjalfestar lausnir standa frammi fyrir aukinni lagalegri- og orðsporsáhættu. Samkeppnisforskot framtíðarinnar felst því ekki í því hver notar mestu gervigreindina heldur hver getur best sýnt fram á að henni sé treystandi. Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri Opus Futura. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Skoðun Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar