Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 19. júní 2026 11:51 Guðmundur Ari Sigurjónsson Upp er runninn síðasti dagur þingsins fyrir þingfrestun, það er að segja, ef ekkert óvænt gerist. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, kveðst sáttur við þingveturinn og segir enga þörf fyrir svokallaðan þingstubb síðsumars. „
Við erum að klára hérna fjöldann allan af málum, bæði þingmannamál en líka aðallega stjórnarmál. Við erum að enda með að klára rúmlega hundrað mál, stjórnarmál, eftir mjög góðan vetur, þingvetur.“ Á dagskrá eru atkvæðagreiðslur um að veita opinberum háskólum heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES og stuðningur við einkarekna fjölmiðla svo fátt eitt sé nefnt. Síðan eru mál sem snúa að orkumálum. „Við erum annars vegar að klára mál sem snýr að því að jafna raforkureikning landsmanna. Það hefur verið mjög ójafnt hvað landsmenn eru að greiða háan raforkureikning á landsbyggðinni en við erum að stíga hérna stór skref í dag sem að jafnar raforkureikninginn. Þetta munar, við erum sko að tala um hundruð þúsunda fyrir til dæmis bara kúabændur á landsbyggðinni og tekur gildi strax núna fyrsta júlí. Við erum einnig að samþykkja nýja rammaáætlun þar sem við erum að fara í virkjanir, meðal annars á Vestfjörðum til að höggva svona á raforkuóöryggið þar.“ Stjórnarandstaðan fær þá eitthvað fyrir sinn snúð. „Við höfum bara átt gott samstarf, þingflokksformennirnir, og í rauninni milli stjórnar og stjórnarandstöðu og í dag eru stjórnarandstöðuflokkarnir að flytja fjögur mál og ég held að á þremur þeirra séu sem sagt stjórnarþingmenn sem sagt með þeim að flytja málin.“ Guðmundur Ari segir enga þörf á svokölluðum þingstubbi síðsumars til að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það sé langeðlilegast að mati Guðmundar að umræðan eigi sér stað meðal þjóðarinnar. „Við höfum nú fylgst með því, hvort sem það eru félagasamtök sem spretta upp eða í þjóðfélagsumræðunni, að sú umræða á langbest heima meðal þjóðarinnar og að þjóðin fái bara svigrúm til að taka upplýsta ákvörðun. Við þingmenn þurfum ekki að vera hérna að halda þingfundi til að taka þátt í þeirri umræðu. Við treystum þjóðinni til að taka þessa ákvörðun sjálf,“ sagði Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Stefna á að ljúka þingi í dag Þingfundur stóð fram til klukkan hálfellefu í gærkvöldi og annar fundur er á dagskrá klukkan hálfellefu fyrir hádegið og skal stefnt að því að ljúka þingi í dag fyrir sumarfrí. 19. júní 2026 07:50 Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur fram tillögu um að nítján manns verði veittur ríkisborgararéttur. Alls tók nefndin fyrir 166 umsóknir. Alþingi hefur heimild til að veita ríkisborgararétt með lögum og er tillagan tekin til atkvæðagreiðslu í lok þingvetrar. 18. júní 2026 18:48 „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Þingforseti hvatti þingmenn til þess að vera á tánum í þingsal í dag í röð atkvæðagreiðslna. Til stendur að ljúka þingstörfum á morgun og þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verða jafnframt tekin til umræðu. Þingmaður Framsóknar vonar að þingsályktunartillaga um greiningu á jarðakaupum erlendra aðila nái í gegn. 18. júní 2026 14:00 Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Sjá meira
Stefna á að ljúka þingi í dag Þingfundur stóð fram til klukkan hálfellefu í gærkvöldi og annar fundur er á dagskrá klukkan hálfellefu fyrir hádegið og skal stefnt að því að ljúka þingi í dag fyrir sumarfrí. 19. júní 2026 07:50
Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur fram tillögu um að nítján manns verði veittur ríkisborgararéttur. Alls tók nefndin fyrir 166 umsóknir. Alþingi hefur heimild til að veita ríkisborgararétt með lögum og er tillagan tekin til atkvæðagreiðslu í lok þingvetrar. 18. júní 2026 18:48
„Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Þingforseti hvatti þingmenn til þess að vera á tánum í þingsal í dag í röð atkvæðagreiðslna. Til stendur að ljúka þingstörfum á morgun og þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verða jafnframt tekin til umræðu. Þingmaður Framsóknar vonar að þingsályktunartillaga um greiningu á jarðakaupum erlendra aðila nái í gegn. 18. júní 2026 14:00