Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 09:34 Víkingar eru komnir með sex stiga forskot á KR-inga á toppi Bestu deildarinnar eftir sigurinn í gærkvöld. vísir/Anton Íslandsmeistarar Víkings unnu toppslaginn gegn KR, Emil Atlason skoraði þrennu í hreint út sagt sturluðum leik í Garðabæ, og Skagamenn unnu dýrmætan sigur á Val. Öll mörkin má sjá á Vísi.
Víkingar unnu KR-inga 2-0 og eru þar með komnir með sex stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar, nú þegar þessi tvö lið hafa spilað 11 leiki. Framarar eru svo átta stigum á eftir Víkingi og eiga leik til góða. Helgi Guðjónsson skoraði fyrra mark Víkings undir lok fyrri hálfleiks og Valdimar Þór Ingimundarson það seinna á 73. mínútu eftir frábæran undirbúning Daníels Hafsteinssonar. Í Garðabænum virtist Breiðablik ætla að keyra yfir Stjörnuna því blikar komust í 3-0 á fyrsta hálftímanum. Aron Bjarnason skoraði tvö mörk, það fyrra með draumaskoti, eftir að Viktor Karl Einarsson hafði skorað fyrsta markið. Þá var hins vegar komið að Emil Atlasyni sem minnkaði muninn í 3-2 fyrir hálfleik með tveimur mörkum. Kristófer Ingi Kristinsson kom Blikum í 4-2 en Emil fullkomnaði þrennu sína áður en Birnir Snær Ingason jafnaði svo metin á 80. mínútu með föstu skoti og tryggði stig í fyrsta leik Stjörnunnar undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar. Skagamenn komu sér svo upp fyrir Valsmenn í 5. sæti deildarinnar, með 1-0 sigri þar sem Viktor Jónsson skoraði sigurmarkið. Bæði lið eru með 15 stig en ÍA á nú leik til góða á Val.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík KR ÍA Valur Stjarnan Breiðablik Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira