Innlent

Keyrði rútu á tuttugu kíló­metra hraða frá Reykja­vík í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá sím­töl“

Eiður Þór Árnason skrifar
Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Myndin er úr safni.
Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Myndin er úr safni. Vísir/Anton Brink

Vélavandi varð til þess að rúta á vegum Hópbíla merkt Bláa lóninu keyrði á um tuttugu kílómetra hraða á klukkustund frá umferðarmiðstöðinni BSÍ í Reykjavík í Hafnarfjörð upp úr klukkan þrjú síðdegis.

Vaktstjóri segir að ökutækið hafi ekki komist hraðar og því þurft að flytja það í höfuðstöðvar fyrirtækisins í Hafnarfirði. Rútan er merkt Destination Blue Lagoon en Hópbílar eru með reglulegar áætlunarferðir úr borginni í Bláa lónið.

„Það sem gerist stundum er að ef sótsían fyllist og er ekki blásið út þá á hann til að missa afl. Við þurftum að keyra hana til Hafnarfjarðar á tuttugu þannig að það var nú bara það,“ segir Hjörtur Þór Unnarsson, vaktstjóri hjá Hópbílum, í samtali við Vísi. Þar hafi rútan verið tekin úr umferð og fari á verkstæði.

Umferðin hæg á þessum tíma dags

Hjörtur segir að aðrir verði að svara því hvort þetta aksturslag hafi valdið miklum truflunum á umferð.

„Það er náttúrulega mikil umferð á þessum tíma þannig að það má kannski segja að hraðinn á umferðinni er ekki mikið meiri en tuttugu á þessari leið. Þannig að ég vil nú meina að það hafi verið lítil truflun á umferð. En kannski á ég eftir að fá símtöl.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×