„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Jakob Bjarnar skrifar 15. júní 2026 13:20 Diljá Mist telur Ísland fljóta sofandi að feygðarósi með öll sín mikilvægu samskipti við Bandaríkin. vísir/vilhelm Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur þungar áhyggjur af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Hún spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra út í stöðu mála hvað þau varðar og svörin sem Diljá Mist fékk voru ekki til þess fallin að minnka áhyggjur hennar, síður en svo.
Diljá Mist gagnrýnir íslensk stjórnvöld harðlega: „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu,” segir Diljá Mist í samtali við Vísi. Hún vill reyndar meina að það hafi orðið algjör u-beygja í samskiptum þjóðanna. „Það er risamál,“ segir Diljá Mist og leggur áherslu á orð sín. „Við virðumst bara dottin út úr öllu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fær bara fundi með einhverjum undirmönnum. Ég spurðist fyrir og það er engin önnur ferð á dagskrá, „hugsanlega í haust“. Meðan þetta er algjört forgangsmál hjá öllum evrópskum leiðtogum, þar með talið norrænum.“ Óformlegt spjall á göngunum Í fyrirspurnartíma kom fram í svörum Kristrúnar að Trump Bandaríkjaforseti væri mjög meðvitaður um sérstakt samband Bandaríkjanna við Ísland í tengslum við varnarsamninginn og að hann væri enn þá í fullu gildi. Þetta mun hann hafa fullyrt við Kristrúnu. Er hægt að gera betur? „Þarna er alltaf verið að vísa í eitthvað óformlegt spjall á göngunum, rétt eins og í ESB-umræðunni – það er ekkert fast í hendi.“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm En verður ekki að líta til þess að Trump er ekkert allra, svo vægt sé til orða tekið? „Hahaha? Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi utanríkisráðherra tók á móti tveimur utanríkisráðherrum, bæði frá Trump og Biden, auk varaforseta Bandaríkjanna ásamt því sem hann fór nokkrar ferðir út,“ segir Diljá sem var einmitt aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs í ráðherratíð hans. „Við settum af stað efnahagssamráð við Bandaríkin þegar Trump var forseti og þá var farið að bera á þessari einangrunarstefnu. Það þarf að vinna fyrir þessu. Utanríkisráðherrar og/eða forsætisráðherrar Norðurlandanna hafa allir sinnt þessu mjög vel. Þú þarft að láta vita af þér og hamast í þessu,“ segir Diljá. Vill bandaríska herstöð á Íslandi Og Diljá Mist vill ganga lengra: „Ég ætla að fullyrða að það sé viljandi verið að reka fleyg á milli samstarfs okkar við Bandaríkin, og það er stórhættulegt – þjóðaröryggismál.“ En hvað er íslenski sendiherrann eiginlega að gera þarna úti í Bandaríkjunum? Diljá Mist segir vinnu hennar erfiða þegar ráðherra er svona óviljugur. „Þegar ég lagði fram fyrirspurn í upphafi árs þá hafði Þorgerður Katrin einungis farið einu sinni til Bandaríkjanna.“ Diljá Mist telur að staða Íslands í málarekstri með S-Afríkumönnum sé til þess eins fallið að ergja Donald Trump Bandaríkjaforseta.vísir/vilhelm Diljá Mist rekur þróun mála, Gaza-ráðstefnu og málarekstur með S-Afríku gegn Ísrael. „Þetta er fókusinn hjá henni auk ESB-daðurs sem Trump hefur sérstakt horn í síðu á.“ En hvað viljum við meira? Bandaríska herstöð á Íslandi? „Endilega. Það hef ég alltaf sagt. Við viljum auðvitað fríverslunarsamning, sem gæti verið utan seilingar núna en í því eigum við að vinna stöðugt. Það verða pólitíkusar í Bandaríkjunum sem halda áfram eftir Trump. Efnahagssamráðið hefur verið í dvala eftir að við fórum frá skilst mér, það er mjög vont því ekki viljum við lenda í tollum hjá tollaglöðum forseta. Svona til viðbótar við tollana sem ESB er að skella á okkur,“ segir Diljá Mist sem telur Ísland vanrækja öll tengsl við Bandaríkin og það kunni ekki góðri lukku að stýra.
Bandaríkin Donald Trump Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira