Körfubolti

Martin með mikil­væg stig í sigri Alba Berlin

Andri Broddason skrifar
Martin Hermannsson skoraði mikilvæg stig fyrir Alba Berlin í úrslitaviðureign gegn Bayern Munchen
Martin Hermannsson skoraði mikilvæg stig fyrir Alba Berlin í úrslitaviðureign gegn Bayern Munchen Getty/Moritz Eden

Alba Berlin vann Bayern Munchen í öðrum leik úrslitaviðureignarinnar í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Næsti leikur verður spilaður í Berlín en viðureignin stendur jöfn 1-1.

Martin Hermansson og félagar í Alba Berlin jöfnuðu úrslitaviðureign þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta með sigri á Bayern Munchen þar sem leikurinn endaði 86-79.

Alba Berlin byrjaði leikinn vel en Bayern Munchen skoraði 27 stig í öðrum leikhluta á meðan Alba Berlin skoraði aðeins 16. Næstu tveir leikhlutar voru betri hjá Alba Berlin og liðið náði yfirhöndinni eftir mikilvæg stig frá Martini Hermanssyni.

Í fjórða leikhluta var Bayern Munchen yfir 76-74. Þá náði Martin Hermansson góðri stoðsendingu til að jafna leikinn og skoraði risakörfu sóknina eftir til að tryggja Alba Berlin forystu leiksins.

Alba Berlin náði að halda forystunni út leikinn og jafnaði því viðureign liðanna. Næstu tveir leikir verða spilaðir í Berlín og því kjörið tækifæri fyrir Martin að verða Þýskalandsmeistari á heimavelli. Vinna þarf þrjá leiki í úrslitaviðureigninni til að standa uppi sem sigurvegari mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×