Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. júní 2026 22:42 Aron Elís Þrándarson skoraði mikilvægt mark í bikarsigri Víkinga á Akranesi í kvöld. Vísir/Diego „Drullu erfiður leikur. Myndi segja erfiðasti leikurinn á tímabilinu hingað til,“ sagði Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, eftir 1-2 sigur á ÍA í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoruðu gestirnir úr Víkinni tvö mörk um miðjan síðari hálfleikinn, en Skagamenn náðu inn sárabótamarki á lokamínútu leiksins. Aron Elís skoraði síðara mark Víkings með skalla, stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. „Gott að koma inn á strax í horn og skalla hann inn, koma sér strax inn í leikinn.“ Aron Elís talaði um að leikurinn hafi verið einn sá erfiðasti á tímabilinu hingað til. Aðspurður hvernig tilfinningin var inn í klefa í hálfleik eftir nokkuð bragðdaufan fyrri hálfleik, þá hafði Aron Elís þetta að segja. „Mér leið ágætlega. Mér fannst strákarnir ofan á í baráttunni, sérstaklega þegar leið á seinni hálfleikinn. Vorum búnir að fá eitthvað af færum, en samt bara “fiffty-fiffty” og menn gerðu sér alveg grein fyrir því að við þyrftum að koma brjálaðir út í seinni.“ Víkingar hafa nú unnið ellefu leiki í röð í öllum keppnum og eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins og eru á toppnum í Bestu deildinni. Aðspurður út í framhaldið, þá var Aron Elís byrjaður að fókúsera á stærsta leik sumarsins hingað til, Víkingur-KR, sem fram fer á þriðjudaginn. Efstu tvö lið Bestu deildarinnar að mætast í leik sem nú þegar er orðið uppselt á. „Nú er bara risa leikur gegn KR á þriðjudaginn og það þýðir ekkert að vera fagna þessu of mikið. Það er bara alvöru leikur á þriðjudaginn, uppselt og það verður geggjuð stemning í Víkinni.“ Aron Elís hefur verið að spila takmarkað á þessu tímabili eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum á síðasta tímabili. Hann segist sjálfur vera að komast í gang en vildi ekki fara frekar út í það af ótta við að jinxa það sem koma skal. „Maður er bara að komast í gang eftir erfið meiðsli og ná snerpu og leikstandinu í gang. Ég ætla ekki að fara jinxa neitt,“ sagði Aron Elís brosandi að lokum.
Mjólkurbikar karla Víkingur Reykjavík ÍA Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjá meira