Viðskipti innlent

Enn fjölgar aflýsingum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Flugferðirnar þrjár eru orðnar sex.
Flugferðirnar þrjár eru orðnar sex. Vísir

Sex flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag vegna manneklu. Greint hafði verið frá þremur þeirra en nú hafa þrjú bæst við. Kjaradeilan harðnar enn.

Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair staðfestir í samtali við fréttastofu að auk þriggja Evrópuflugferðum sem aflýst var í dag hefur flugferðum til Boston og New York seinnipartinn verið aflýst sem og fragtflugi til Liege í Belgíu.

Útlit var fyrir helgi fyrir að deila Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair næðu sáttum. FÍA hvatti félagsmenn sína til að hlaupa undir bagga og halda áfram að selja frídaga sína.

Í fréttabréfi til félaga frá í dag segir að þeir „sem treysta sér“ séu áfram hvattir til slíks.

„Þess ber þó að geta að enginn er skikkaður í aukavinnu og mikilvægt að ganga ekki fram af þolmörkum og láta öryggið ávallt njóta vafans. Þreyta flýgur ekki í okkar bransa,“ segir í bréfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×