Innlent

Samgönguáætlun sam­þykkt á Al­þingi

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur ástæðu til að kætast.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur ástæðu til að kætast. Vísir/Vilhelm

Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára. 

Fréttir bárust af því í morgun að samkomulag hefði náðst milli þingflokkanna um þinglok og má því búast við að þingmál fari næstu daga að renna í gegn, hvert af öðru, til samþykktar.

Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar komu stjórnarliðar í pontu til að mæra þetta mikilvæga skref. Með samþykktinni væri rofin kyrrstaða sem ríkt hefði í samgöngumálum og ný samgönguáætlun brygði frá hinum fyrri að því leyti að hún væri fullfjármögnuð. 

Stjórnarandstæðan reyndist ekki jafn ánægð, sagði það ekki standast að hún væri fullfjármögnuð eða að kyrrstaðan væri með þeim rofin. Til að mynda væru engin göng tilbúin til útboðs og því enn langt í að borinn verði ræstur. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×