Erlent

Facebook liggur niðri

Agnar Már Másson skrifar
Facebook er í eigu Meta.
Facebook er í eigu Meta. Vísir/Getty

Samfélagsmiðilarnir Facebook, Messenger og Instagram liggja niðri, samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector.

Þar kemur fram að fólk eigi í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. 

Fólk virðist eiga í erfiðleikum með að skrá sig inn í forritið. Sumir notendur voru skráðir út úr símaforritinu vegna „óvæntrar villu.“

Þá virðist áhrifa gæta hjá Instagram og Messenger, sem einnig eru í eigu Meta, tæknirisa Marks Zuckerbergs. 

Facebook hefur ekki gefið út útskýringar vegna málsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×