Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2026 13:40 Ahmed al-Sharaa, forseti Sýrlands, fór til Rússlands í janúar og fundaði þar með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þá ræddu þeir meðal annars veru rússneskra hermanna í Sýrlandi og veru Bashars al-Assad í Moskvu. EPA/MAXIM SHIPENKOV Ráðamenn í Rússlandi og í Sýrlandi eiga í viðræðum um samskipti ríkjanna og um tvær rússneskar herstöðvar í Sýrlandi. Meðal annars segir talskona utanríkisráðuneytis Rússlands að mögulega verði viðvera Rússa í herstöðvunum endurskipulögð.
Þegar Bashar al-Assad, fyrrverandi forseti Sýrlands, flúði til Rússlands í lok árs 2024 voru uppi efasemdir um framtíð tveggja rússneskra herstöðva þar í landi. Rússar hafa lengi rekið flugstöð í Latakia og flotastöð í Tartous. Þessa flotastöð og flugvöll hafa Rússar notað til umsvifa í Miðjarðarhafinu og sem stökkpall inn í Afríku, þar sem umsvif þeirra hafa aukist til muna á undanförnum árum. Sjá einnig: Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Uppreisnar- og vígamennirnir sem stökktu Assad á flótta hafa litla ástæðu til að þykja vænt um Rússa sem vörpuðu sprengjum á þá og óbreytta borgara í Sýrlandi um árabil og studdu við bakið á Assad. Rússneskir hermenn yfirgáfu aldrei þessar herstöðvar en drógu úr umsvifum sínum þar. Síðan þá hafa ráðamenn í Rússlandi varið miklu púðri í að bæta samskiptin við ríkisstjórn Ahmeds al-Sharaa, nýs forseta Sýrlands. Rússar hafa sent peninga til Sýrlands og átt í viðræðum um að koma að uppbyggingu innviða þar. Í fyrra bárust fregnir af því að þessar viðræður milli Rússa og Sýrlendinga hefðu meðal annars snúist um að Rússar bæðu Sýrlendinga afsökunar og afhentu Assad til nýrra yfirvalda í Sýrlandi. Það hefur ekki gerst enn. Í síðustu viku kom rússneskt flutningaskip að landi í Sýrlandi með birgðir fyrir umræddar herstöðvar og þótti það til marks um að Rússar væru ekki á leiðinni þaðan í bráð. Ekki hefur verið opinberað hvort Rússar og Sýrlendingar hafi komist að einhvers konar samkomulagi um herstöðvarnar. María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, sagði í morgun að viðræður milli ríkjanna væru yfirstandandi. Markmið Rússa væru að auka samskipti og samstarf ríkjanna. Hún sagði að viðræðurnar hefðu einnig „eðlilega“ snúist um viðveru rússneskra hermanna í Rússlandi. Þar á meðal hefði verið talað um endurskipulagningu rússneskra herstöðva en sagði að það væri varnarmálaráðuneytisins að fara nánar út í það.
Sýrland Rússland Vladimír Pútín Hernaður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira