Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. júní 2026 23:11 Konan var á göngu fyrir utan Háskólann í Reykjavík. vísir/vilhelm Landsréttur staðfesti sýknu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu sem féll fyrir utan Háskólann í Reykjavík og krafðist bóta frá skólanum. Hún taldi að misfella í stéttinni væri á ábyrgð skólans en dómurinn féllst ekki á það.
Í janúar 2024 var konan á gangi fyrir utan Háskólann í Reykjavík, með tveggja ára barn í fanginu og með au-pair stúlku. Hún var á gangstétt sem liggur frá aðalinngangi skólans í átt að bílastæðum er hún féll og brotnaði meðal annars úlnliður hennar. Vegna þessa þurfti konan að gangast undir aðgerð. Konan krafðist bóta annars vegar úr frítímatryggingu sem hún var sjálf með og hins vegar úr ábyrgðartryggingu Háskólans í Reykjavík. Fallist var á fyrri kröfu hennar en ekki þá síðarnefndu, ákvörðun sem hún skaut til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum sem féllst ekki á kröfur hennar. Leitaði hún þá til Héraðsdóms Reykjavíkur og loks til Landsréttar. Í stefnunni sagðist konan hafa dottið vegna þess að hún rak tærnar á öðrum fæti sínum í misfellu á stéttinni. Hún byggði málið sitt á því að Háskólinn í Reykjavík beri ábyrgð á líkamstjóni hennar þar sem það hafi verið afleiðing óforsvaranlegra aðstæðna á fasteign skólans og vanrækslu starfsmanna skólans á að bregðast við hættulegri gangbraut við aðalinngang skólans. Óhapp Dómurinn skoðaði ljósmyndir og myndskeið, annars vegar af gangstéttinni og hins vegar af aðstæðum í janúar. Var það lagt til grundvallar að miðað við mynd sem dóttir konunnar tók gæti misfellan hafa verið um fimm sentimetrar á hæð þar sem hún var mest. Samkvæmt starfsmanni HR höfðu steyptu gangstéttarflekarnir í umræddri gangstétt sigið mismikið vegna eiginleika jarðvegsins undir henni. Því hafi myndast misfellur sums staðar sem erfitt sé að laga nema með því að brjóta upp alla stéttina og leggja hana að nýju. „Samkvæmt framburði vitnisins hafði lengi verið vitneskja um þetta mál innan háskólans og hafi í gegnum tíðina, áður en slys stefnanda átti sér stað, verið ráðist í aðgerðir til að ráða bót á slíkum misfellum enda væri þetta hættulegt ef fólk gætti ekki að sér,“ segir í dómnum. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst hins vegar ekki á rök konunnar og taldi að slys konunnar hefði fyrst og fremst átt að rekja til óhappatilviljunar og/eða eigin aðgæsluleysis hennar. Niðurstaða Landsréttar, eftir áfrýjun konunnar, var að dómurinn skyldi vera óraskaður.
Dómsmál Tryggingar Háskólar Reykjavík Slysavarnir Skóla- og menntamál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira