Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar 12. júní 2026 08:15 Ég vil tala við fólkið sem finnst í lagi að loka börn inni. Ekki „kerfið“. Ekki einhverja óljósa stofnun. Ekki nafnlausa stjórnsýslu sem allir fela sig á bak við þegar grimmdin verður of sýnileg. Ég vil tala við fólkið. Manneskjuna. Fólkið sem býr hérna. Fólkið sem fer heim til sín eftir vinnu. Fólkið sem sækir börnin sín á leikskóla, eldar kvöldmat, kyssir barnabörnin sín góða nótt og telur sig vera gott fólk. Fólkið sem heldur jól, talar um kærleika, deilir myndum af fjölskyldunni sinni og skrifar falleg orð um öryggi barna, en getur samt réttlætt að börn annarra séu lokuð inni fyrir það eitt að hafa flúið hörmungar. Hvað heitir sú manneskja innra með þér? Hvernig útskýrir þú það fyrir sjálfri þér að þitt barn eigi skilið hlýju, vernd og öryggi, en barn sem fæðist hinum megin við landamæri eigi skilið lás, ótta og niðurlægingu? Hvernig getur þú horft á þitt eigið barn sofa og samt fundist ásættanlegt að annað barn sofi í ótta vegna ákvarðana sem fullorðið fólk tekur með köldu blóði? Það er ekki nóg að segja, „svona eru reglurnar“. Reglur hafa aldrei hreinsað samvisku neins. Reglur hafa oft verið notaðar til að réttlæta það sem síðar var kallað skömm. Það er ekki nóg að segja, „við getum ekki tekið við öllum“. Enginn er að biðja þig um að taka við öllum. Það er verið að biðja þig um að missa ekki mennskuna þegar þú horfir á barn. Og ef þú getur ekki einu sinni það, þá er vandamálið ekki barnið. Vandamálið ert þú. Þú ert ekki hlutlaus þegar þú réttlætir að börn séu lokuð inni. Þú ert ekki raunsæ þegar þú talar um börn á flótta eins og þau séu rusl sem þarf að færa til. Þú ert ekki ábyrg borgari þegar þú krefst harðari aðgerða gegn fólki sem hefur misst allt. Þú ert þátttakandi í grimmdinni. Þú ert hluti af samfélagslegu ofbeldi sem klæðir sig í snyrtileg orð, þurrar reglur og kuldalega umræðu. Þú getur kallað það útlendingamál. Þú getur kallað það landamæravörslu. Þú getur kallað það framkvæmd. Þú getur kallað það lög. En barn sem er lokað inni upplifir það ekki sem „framkvæmd“. Barnið upplifir það sem ótta. Foreldrið upplifir það sem niðurlægingu. Fjölskyldan upplifir það sem valdníðslu. Og sá sem hefur sjálfur verið barn í óöryggi veit að slík reynsla hverfur ekki þegar dyrnar opnast aftur. Hún situr eftir. Hún fer inn í líkamann. Hún fer inn í svefninn. Hún fer inn í traustið. Hún fer inn í allt lífið. Ég veit það, því ég þekki þetta. Ég þekki það að vera barn sem fullorðið fólk setti í aðstæður sem ekkert barn á að þurfa að þola. Ég þekki það að vera vísað frá, sett í óvissu, sett út á götu, sett í aðstæður þar sem maður átti að vera þakklátur fyrir molana á meðan reisnin var tekin frá manni. Ég þekki það að þurfa að lifa af ákvarðanir fólks sem talaði um mannúð á meðan það framdi andstæðu hennar. Og ég er enn að vinna úr því. Þess vegna hef ég enga þolinmæði fyrir fólki sem glottir yfir brottvísunum. Enga þolinmæði fyrir fólki sem talar um börn á flótta eins og þau séu ógn. Enga þolinmæði fyrir fólki sem finnur hugarró í því að börn annarra séu hrædd, svo lengi sem þeirra eigin börn sofa örugg heima. Það er eitthvað djúpt siðferðilega bilað við það að geta lokað hjartanu svona nákvæmlega eftir þjóðerni, uppruna og stöðu í kerfinu. Það er eitthvað rotið við það að elska eigin fjölskyldu, en hafna þeirri einföldu staðreynd að aðrir elska sín börn jafn mikið. Foreldri á flótta er ekki minna foreldri en þú. Barn á flótta er ekki minna barn en þitt barn. Þú hefðir gert það sama. Ef sprengjur féllu á götuna þína, ef heimilið þitt væri horfið, ef barnið þitt væri í hættu, ef framtíðin væri dauði eða flótti, þá myndir þú hlaupa. Þú myndir brjóta reglur. Þú myndir fara yfir landamæri. Þú myndir biðja, ljúga, gráta, berjast og gera hvað sem þyrfti til að koma barninu þínu í skjól. Og þá myndir þú ekki kalla þig glæpamann. Þú myndir kalla þig foreldri. En þegar annað foreldri gerir nákvæmlega það sama, þá kallar þú það vandamál. Það er hræsnin. Það er grimmdin. Það er siðferðilega gjaldþrotið. Við í vestrænum samfélögum erum ekki saklaus áhorfendur að hörmungum heimsins. Við höfum sprengt, stutt, selt vopn, hagnast, lokað augunum og kosið stjórnmál sem gera líf fólks óbærilegt annars staðar. Svo, þegar fólkið sem lifir af afleiðingarnar kemur að dyrunum okkar, þvoum við hendurnar og segjum, þetta kemur okkur ekki við. Jú, þetta kemur okkur við. Það kemur okkur við þegar börn eru fangelsuð í okkar nafni. Það kemur okkur við þegar fjölskyldur eru niðurlægðar í okkar samfélagi. Það kemur okkur við þegar fólk sem býr hér, vinnur hér, elur upp börn hér og þykist standa fyrir réttlæti, getur samt samþykkt að saklaus börn séu lokuð inni. Þú þarft að horfa í spegilinn og spyrja þig hvað þú ert orðin. Ekki hvað lögin segja. Ekki hvað flokkurinn þinn segir. Ekki hvað kommentakerfið segir. Ekki hvað óttinn þinn segir. Hvað ert þú orðin þegar þú getur réttlætt að barn sé lokað inni? Hvað ert þú orðin þegar þú sérð foreldri reyna að bjarga barninu sínu og svarar með refsingu? Hvað ert þú orðin þegar þú kallar þig góða manneskju, en mennskan þín nær bara að landamærunum? Ég vil ekki heyra meira um að þetta sé flókið þegar grunnspurningin er svona einföld: Á að loka saklaus börn inni? Svarið er nei. Ekki stundum. Ekki ef þau koma frá röngu landi. Ekki ef foreldrar þeirra tóku ranga leið. Ekki ef kerfið er þreytt. Ekki ef stjórnmálamenn vilja sýnast harðir. Ekki ef einhverjum finnst óþægilegt að horfast í augu við afleiðingar eigin forréttinda. Nei. Saklaus börn eiga ekki að vera fangelsuð. Og ef þú þarft langa útskýringu til að komast að þeirri niðurstöðu, þá er það ekki barnið sem þarf að skoða betur. Það ert þú. Höfundur er stjórnmálafræðingur og fyrrum flóttabarn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jasmina Vajzović Crnac Brottfararstöð fyrir útlendinga Réttindi barna Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun