Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar 11. júní 2026 07:45 Á morgun, föstudaginn 12. júní klukkan 12:00, munu Grindvíkingar og stuðningsfólk þeirra koma saman til friðsamlegra mótmæla. Við erum ekki að mótmæla vegna þess að við viljum átök. Við erum ekki að biðja um neitt sem er ómögulegt að framkvæma. Við erum ekki að biðja um ölmusu. Við erum að biðja um að stjórnvöld standi við þau loforð sem gefin voru og að hlustað sé á fólkið sem hefur lifað með afleiðingum þessara hamfara á hverjum einasta degi í rúm tvö og hálft ár. Til stjórnvalda Við skiljum að þið standið frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. Við skiljum að enginn getur fjarlægt náttúruvá eða lofað fullkomnu öryggi. En við skiljum ekki hvernig það getur talist eðlilegt að fólk sem seldi hús sín til Þórkötlu fái eftir 31. ágúst aðeins að dvelja í þeim í 12 daga á mánuði án þess að nokkur raunveruleg lausn hafi verið kynnt samhliða. Við skiljum ekki hvernig talað var um endurkauparétt, kaupleigu, leiguleiðir og aðrar lausnir mánuðum saman en nú virðist allt í einu sem slíkt hafi aldrei staðið til. Við skiljum ekki hvernig hægt er að segja fólki hvað það megi ekki gera án þess að segja því hvaða leiðir séu í boði. Við skiljum heldur ekki hvernig um 250 manns geta búið í Grindavík allt árið um kring í öðrum eignum en þeim sem Þórkatla keypti, á meðan aðrir mega aðeins vera þar í 12 daga á mánuði. Eru þeir ekki í hættu? Er hættan mismunandi eftir því hver á húsið? Eða er fólk aðeins í hættu eftir að ákveðnum dagafjölda er náð? Þetta eru eðlilegar spurningar sem við eigum enn eftir að fá svör við. Við höfum einnig verið beðin um að virða áhættumat sem nú er verið að endurskoða vegna þess að ekki var tekið nægjanlegt tillit til allra þeirra þátta sem skipta máli. Nú eru fyrirtæki, stofnanir og hagsmunaaðilar kallaðir að borðinu til að leggja sitt af mörkum við nýtt mat. Það fögnum við. En það vekur líka spurningar. Ef fyrra matið var fullnægjandi, hvers vegna þarf nýtt? Og ef nýtt mat er nauðsynlegt, er þá ekki verið að viðurkenna að fyrra matið hafi ekki gefið rétta mynd af stöðunni? Við erum ekki að biðja um sérmeðferð. Við erum að biðja um sanngirni, skýrar lausnir og raunverulegt samtal. Til íslensku þjóðarinnar Mörg ykkar hafið spurt hvernig okkur geti dottið í hug að vilja fá húsin okkar aftur eftir að hafa selt þau. Við skiljum þá spurningu. En við erum ekki að biðja um að fá húsin okkar gefins. Við viljum kaupa þau aftur. Við viljum nýta forkaupsrétt sem kveðið er á um í samningum. Við viljum skoða kaupleigu. Við viljum skoða leiguúrræði. Við viljum einfaldlega fá raunhæfan möguleika til að snúa heim. Á meðan hefur söluferlið ekki hafist. Á meðan stendur fé þjóðarinnar bundið í eignum sem hvorki eru seldar né nýttar. Á meðan standa sum hús auð. Sum eru farin að láta á sjá. Rakaskemmdir, mygla og viðhaldsleysi aukast eftir því sem tíminn líður. Við spyrjum því hvort það sé raunverulega betra að láta hús standa tóm og skemmast en að gera þau upp, leigja þau út á sanngjörnum kjörum eða selja fólki sem vill búa í þeim. Þú þarft ekki að vera Grindvíkingur til að skilja þetta. Ímyndaðu þér að þú þyrftir að yfirgefa heimilið þitt með skömmum fyrirvara. Ímyndaðu þér að þér væru gefin loforð um lausnir sem síðan skiluðu sér aldrei og þú þyrftir að bíða mánuðum saman eftir þeim. Ímyndaðu þér að vilja kaupa heimilið þitt aftur, vera tilbúinn að greiða fyrir það og fá svo að heyra að það sé ekki í boði. Ímyndaðu þér að bíða í rúm tvö og hálft ár eftir skýrum svörum. Við óskum engum Íslendingi að lenda í þeirri stöðu sem Grindvíkingar hafa staðið frammi fyrir. Hættan er ekki bara til í Grindavík. Ísland er land náttúruafla. Þess vegna skiptir máli hvernig stjórnvöld koma fram við fólk þegar á reynir. Takið þátt í mótmælunum með okkur, hver veit hvort ykkar bæjarfélag verði næst í röðinni og þið lendið í svipuðu og við. Þá munum við standa með ykkur. Til fjölmiðla Við biðjum ykkur að mæta, hlusta og hjálpa okkur að koma rödd okkar á framfæri. Við erum ekki sérfræðingar í fjölmiðlum. Við erum fjölskyldufólk, eldri borgarar, fyrirtækjaeigendur, launafólk og börn sem hafa lifað við óvissu í langan tíma. Við viljum að fólk fái að heyra okkar hlið. Við viljum að stjórnvöld heyri okkar hlið. Við erum komin með upp fyrir kok af forræðishyggju og ákvörðunum sem teknar eru yfir höfuð okkar án þess að við fáum raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á eigið líf. Höfum við ekki gengið í gegnum nóg? Að lokum Mótmælin á morgun snúast ekki um reiði. Þau snúast um von. Von um að hægt sé að finna lausnir. Von um að stjórnvöld hlusti. Von um að samfélag sem hefur gengið í gegnum meira en flest önnur íslensk samfélög fái tækifæri til að standa aftur á eigin fótum. Við viljum ekki ölmusu. Við viljum ekki forréttindi. Við viljum sanngirni. Við viljum lausnir. Og við viljum að staðið sé við gefin orð. Við hvetjum alla sem vilja standa með okkur að merkja sig „Going“ á viðburðinum. Þeir sem ætla að mæta fá upplýsingar um staðsetningu mótmælanna áður en þau hefjast. https://www.facebook.com/events/1499037691356464 Höfundur er íbúi í grindavík eigandi Grindavík Guesthouse, Grindavík bike rental og Borg Studio & Café. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Mest lesið Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar