Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. júní 2026 18:57 Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Vísir/Bjarni Matvara hefur hækkað mest á Íslandi í Evrópu undanfarin fimm ár miðað við greiningu Samkeppniseftirlitsins. Stjórnvöld geta gert mun meira til þess að bregðast við þróuninni að mati framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu.
Þannig leiðir athugun Samkeppniseftirlitsins í ljós að Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og Sviss er eina ríkið þar sem matvara er dýrari en á Íslandi. Greiningin leiðir í ljós að frá árinu 2020 hafi hækkanir verið mestar á dagvörumarkaði hér á landi samanborið við nágrannalönd, 46 prósent samanborið við 37 prósenta verðhækkun í ESB-löndum. Á sama tíma hafi íslensk launavísitala hækkað um tæp 48 prósent og almennt launastig að meðaltali haldið í við hækkun matvöruverðs. Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir ljóst að verð hækki ekki bara af því bara. „Hjá stærstu aðilunum þá skiptist hundrað kallinn sem þú eyðir út í búð sirka þannig að einhver áttatíu kall fer í að kaupa vöruna inn í búðina, tíkall fer í launin hjá starfsfólki, svo er ýmis annar kostnaður sem þarf að standa undir, ræsting á búðinni, öryggisgæsla og hitt og þetta. Þannig þegar upp er staðið á búðin eftir, hefur átt undanfarin ár svona tvær til þrjár krónur.“ Og helmingur af því fari í endurnýjun á búnaði og restin, um ein króna fari til eigenda. Benedikt segir ýmislegt til ráða strax og nefnir innflutningstolla stjórnvalda. „Og þessi tollvernd hefur þann beina tilgang að halda uppi verðlagi hérna, þannig innlenda framleiðslan hafi einhvern flöt á að koma vörunni sinni á markað og það er á svona tímum þá auðvitað fara menn að hugsa um það hvort það sé ekki orðið löngu tímabært að skoða það hvort þetta er ekki úr hófi.“ Stjórnmálamenn sem verji núverandi tollafyrirkomulag séu fljótir að benda á matvöruverslanir sem hafi ekki úr miklu að moða til að fást við verðhækkanir. Benedikt segir mögulega ESB aðild ekki skipta öllu hvað varðar verð í matvöruverslunum. „Samtökin sem slík hafa enga afstöðu tekið í þeim málum, það eru skiptar skoðanir hér innan samtakanna, þannig það liggur í hlutarins eðli að við erum ekki að fara að tjá okkur um eða setja fram einhverja einarða skoðun en við höfum litið svo á að þessi mál er hægt að ræða og leysa algjörlega óháð því hvort við göngum inn í ESB eða ekki.“
Verslun Matvöruverslun Skattar, tollar og gjöld Neytendur Fjármál heimilisins Verðlag Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira