„Þetta er hreinn uppspuni“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. júní 2026 18:06 Þorsteinn Már segist ekki ætla að verja 25 milljónum króna í úthringiver. Þórhallur Jónsson Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV.
Fyrr í dag var Orðið á götunni birt á DV með fyrirsögninni Þorsteinn Már ætlar að borga 25 milljónir króna fyrir úthringiver í ágúst. Þar segir að fregnir hafi borist fréttastofu DV þess efnis að Þorsteinn ætli að gera slíkt til að koma í veg fyrir að fólk greiði atkvæði með áframhaldandi aðildarviðræðum Íslands við ESB. Atkvæðagreiðslan verður þann 29. ágúst. „Þetta er bara hreinn uppspuni, algjör uppspuni,“ segir Þorsteinn Már í samtali við fréttastofu aðspurður hvort eitthvað sé til í fullyrðingunum. Hann vildi ekki tjá sig um þær að öðru leyti. Í pistlinum kemur einnig fram að forsvarsmenn stærri fyrirtækja í sjávarútvegi vilji halda áfram að taka lán í erlendri mynt og greiða þar með hóflegri vexti á sama tíma og samkeppnisaðilar þeirra borgi hærri vexti af íslenskum lánum. „Vitað er að sum sjávarútvegsfyrirtæki og fleiri stórfyrirtæki, eins og til dæmis Kaupfélag Skagfirðinga sem starfar í sjávarútvegi, landbúnaði, fullvinnslu landbúnaðarafurða, iðnaði, verslun og þjónustu – nánast um allt atvinnulífið – eru óhikað að ráðstafað fúlgum fjár í hræðsluáróður gegn því að þjóðin geti gætt hagsmuna sinna. Að Þorsteinnn Már ætli að greiða 25 milljónir fyrir rekstur á úthringiveri í ágúst er bara eitt af mörgum dæmum,“ segir í pistlinum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Fjölmiðlar Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Sjá meira