Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar 10. júní 2026 08:32 Frumvarp atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi felur í sér grundvallarbreytingu á stjórn sjókvíaeldis. Þar er lagt til að komið verði á nýju kvótakerfi í formi svokallaðs laxahlutar — og að allur sá réttur verði afhentur núverandi rekstraraðilum án útboðs og án endurgjalds til ríkisins. Þetta þýðir í reynd að verðmæt opinber auðlind verður færð varanlega í hendurnar á stórum einkafyrirtækjum án þess að þjóðin fái greitt fyrir. Sérstaklega vekur athygli að sá laxahlutur sem frumvarpið hyggst úthluta án endurgjalds mun að verulegu leyti enda í höndum fyrirtækja sem eru undir stjórn norskra eldisrisa. Með öðrum orðum er verið að færa verðmæt og framseljanleg réttindi yfir íslenskri auðlindanýtingu til aðila sem eru að stórum hluta í erlendri eigu, endurgjaldslaust. Ávinningurinn rennur þannig til erlendra eigenda, en efnahagslegur og umhverfislegur kostnaður starfseminnar situr eftir hjá bændum, landeigendum og öðrum sem reiða sig á heilbrigð vistkerfi og villta laxastofna. Landssamband veiðifélaga telur óásættanlegt að svo afdrifarík ákvörðun sé tekin í skjóli nætur. Að mati Landssambandsins er sérstaklega gagnrýnivert að atvinnuvegaráðherra hefur sagt opinberlega að frumvarpið feli ekki í sér nýtt kvótakerfi — þótt ákvæði frumvarpsins segi aðra sögu. Ákvæði frumvarpsins um laxahlut eru byggð á ákvæðum fiskveiðistjórnunarlaganna um aflahlutdeild — sem í daglegu tali er kölluð kvóti. Frumvarpið kveður á um að laxahlutur verði framseljanlegur, leigjanlegur og veðsetjanlegur með nákvæmlega sama hætti og kvótinn. Á sama tíma og frumvarpið úthlutar hundruðum milljarða til stórfyrirtækja í eldi, með geigvænlegum afleiðingum fyrir villta íslenska laxastofna, kveður það á um afnot af jörðum um allt land í þágu eldisins án samþykkis landeigenda eða veiðiréttarhafa. Landssamband veiðifélaga skorar á ráðherra að falla frá áformum um kvótavæðingu sjókvíaeldis og ókeypis kvótaúthlutun til stórfyrirtækja á sama tíma og réttindi landeigenda og veiðiréttarhafa eru skert. Auðlindir landsins eiga ekki að verða að ókeypis eignargrundvelli fárra stórfyrirtækja á kostnað almennings í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjókvíaeldi Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Frumvarp atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi felur í sér grundvallarbreytingu á stjórn sjókvíaeldis. Þar er lagt til að komið verði á nýju kvótakerfi í formi svokallaðs laxahlutar — og að allur sá réttur verði afhentur núverandi rekstraraðilum án útboðs og án endurgjalds til ríkisins. Þetta þýðir í reynd að verðmæt opinber auðlind verður færð varanlega í hendurnar á stórum einkafyrirtækjum án þess að þjóðin fái greitt fyrir. Sérstaklega vekur athygli að sá laxahlutur sem frumvarpið hyggst úthluta án endurgjalds mun að verulegu leyti enda í höndum fyrirtækja sem eru undir stjórn norskra eldisrisa. Með öðrum orðum er verið að færa verðmæt og framseljanleg réttindi yfir íslenskri auðlindanýtingu til aðila sem eru að stórum hluta í erlendri eigu, endurgjaldslaust. Ávinningurinn rennur þannig til erlendra eigenda, en efnahagslegur og umhverfislegur kostnaður starfseminnar situr eftir hjá bændum, landeigendum og öðrum sem reiða sig á heilbrigð vistkerfi og villta laxastofna. Landssamband veiðifélaga telur óásættanlegt að svo afdrifarík ákvörðun sé tekin í skjóli nætur. Að mati Landssambandsins er sérstaklega gagnrýnivert að atvinnuvegaráðherra hefur sagt opinberlega að frumvarpið feli ekki í sér nýtt kvótakerfi — þótt ákvæði frumvarpsins segi aðra sögu. Ákvæði frumvarpsins um laxahlut eru byggð á ákvæðum fiskveiðistjórnunarlaganna um aflahlutdeild — sem í daglegu tali er kölluð kvóti. Frumvarpið kveður á um að laxahlutur verði framseljanlegur, leigjanlegur og veðsetjanlegur með nákvæmlega sama hætti og kvótinn. Á sama tíma og frumvarpið úthlutar hundruðum milljarða til stórfyrirtækja í eldi, með geigvænlegum afleiðingum fyrir villta íslenska laxastofna, kveður það á um afnot af jörðum um allt land í þágu eldisins án samþykkis landeigenda eða veiðiréttarhafa. Landssamband veiðifélaga skorar á ráðherra að falla frá áformum um kvótavæðingu sjókvíaeldis og ókeypis kvótaúthlutun til stórfyrirtækja á sama tíma og réttindi landeigenda og veiðiréttarhafa eru skert. Auðlindir landsins eiga ekki að verða að ókeypis eignargrundvelli fárra stórfyrirtækja á kostnað almennings í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar