Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júní 2026 19:20 Riemer (t.h.) er náinn Eriksen sem fór beinustu leið á spítala. Getty/AP Landsliðsþjálfari Dana, Brian Riemer, segir Christian Eriksen, leikmann liðsins, hafa það gott miðað við aðstæður. Eriksen hefur verið fluttur á spítala og landsliðsþjálfarinn er á leið þangað. „
Þetta er mikið sjokk,“ sagði Riemer í viðtali við TV 2 í Danmörku eftir að leikur Danmerkur og Úkraínu var flautaður af. Orsök þess er sú að Christian Eriksen, leikmaður danska liðsins, féll til jarðar og hélt um bringuna. Kaldur hrollur fór um áhorfendur en Eriksen fór í hjartastopp á vellinum í leik við Finna á Parken á EM sumarið 2021. Í kjölfarið var græddur í hann bjargráður sem virðist hafa bjargað Eriksen í dag. Í samtali við danska ritmiðla segist Riemer vera á leið á spítalann að taka stöðuna á Eriksen. „Ég hlakka til að sjá hann. Ég mun keyra yfir á spítalann núna þegar ég fæ tækifæri til. Mér finnst ég þurfa að sjá hann og ræða aðeins við hann. Hann er maður sem stendur mér nærri,“ segir Riemer sem var í þjálfarateymi Brentford þegar Eriksen lék með liðinu. Eriksen samdi við Brentford í janúar 2022 og kom sér aftur af stað eftir fyrra hjartastoppið með enska liðinu. Riemer segir samband þeirra hafa verið náið frá tíma Eriksens í Lundúnum. „Það eru sumir leikmenn sem þú verður nánari en aðrir og hann er einn af þeim. Hann kom með mikla reynslu í okkar lið þá. Síðan þá höfum við unnið saman í landsliðinu og hann er leikmaður sem ég á náið samband við og þekki mjög vel. Svo þetta er auðvitað eitthvað sem situr töluvert í mér,“ segir Riemer.
Danski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sjá meira