Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. júní 2026 13:41 Ann Cleeves með bókina Örlagasteina á Ísafirði og Brenda Blethyn í hlutverki ástsælasta karakters Cleeves, Veru Stanhope. Breski glæpasagnahöfundurinn Ann Cleeves birtist fyrirvaralaust í bókaverslun Pennans Eymundssonar á Ísafirði og bauðst til að árita bækur. Cleeves, sem hefur verið þýdd 21 sinni á íslensku, var á ferðalagi með skemmtiferðaskipi sem stoppaði í bænum.
Steingrímur Rúnar Guðmundsson, verslunarstjóri Pennans Eymundssonar, greindi frá heimsókn Cleeves á Facebook við góðar undirtektir aðdáenda glæpasagnahöfundarins en 21 bóka hennar hefur verið þýdd yfir á íslensku. „Ekki á hverjum degi sem maður hittir einn þekktasta glæpasagnahöfund Bretlands sem einfaldlega gengur inn í bókabúð á Ísafirði og heilsar upp á bóksalana,“ skrifaði Steingrímur í færslunni. Cleeves með nýjustu þýðinguna, Örlagasteina. Cleeves hefur skrifað fjörutíu skáldsögur sem hafa flestar hverjar orðið metsölubækur í Bretlandi og víðar, þar með talið á Íslandi. Hún er einna þekktust fyrir seríu sína um rannsóknarlögreglumanninn Veru Stanhope sem var aðlöguð að sjónvarpi með fjórtán þáttaraða seríunni Veru (2011-25) á BBC og Hjaltlandseyjaseríuna um Jimmy Perez sem varð síðar að BBC-þáttunum Shetland (2013-). „Hún kom hérna við og fyrir okkur hefði þetta getað verið hver sem er, maður kveikti ekkert á því hver hún væri. Hún kynnti sig voða hógvær: „Sæl, ég heiti Ann og skrifaði þessa á bók“ og hélt á bók sem hún tók úr hillunni hjá okkur,“ sagði Steingrímur um Cleeves í samtali við blaðamann. „Hún bauðst síðan til að árita nokkrar bækur og fór. En svo kom hún aftur og vildi láta taka mynd af sér við Eymundsson-skiltið,“ sagði hann. Nýjasta bókin sem hefur verið þýdd á íslensku eftir Cleeves er Örlagasteinar um rannsóknarlögreglumanninn Jimmy Perez. „Hún er mjög stór á breskan mælikvarða, miklu stærri en maður hélt. Maður er búinn að vera með þetta nafn fyrir framan augun í mörg ár hérna í búðinni. Ekta breskur spennusagnahöfundur og miðað við viðbrögðin við Facebook-statusnum eru ansi margir sem eiga hana sem uppáhalds höfund,“ sagði hann. En hvað kom til að hún var á Íslandi? „Hún sagðist vera um borð í skipi sem er hérna við höfn í dag. Hún virðist vera um borð til að halda fyrirlestra og sagði að það væri mjög hentugt fyrir sig að ferðast og halda fyrirlestra,“ sagði Steingrímur um Cleeves.
Ísafjarðarbær Bókmenntir Frægir á ferð Bretland Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira