Viðskipti innlent

Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun

Árni Sæberg skrifar
Lisa Graver er forstjóri Alvotech.
Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Aðsend og Vísir/Vilhelm

Gengi hlutabréfa í Alvotech hækkaði um 22 prósent í dag en félagið greindi frá því morgun að það hefði að nýju lagt inn umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæður við Simponi, Simponi Aria og Eylea.

Við lokun Kauphallarinnar í gær stóð gengi Alvotech í 370,5 krónum og hafði aldrei verið lægra. Það virðast því hafa verið kærkomnar fréttir fyrir fjárfesta í morgun þegar félagið birti tilkynningu til Kauphallar um að það hefði sótt um leyfi á ný fyrir þrjár verðmætar hliðstæður.

Gengi félagsins hóf strax að hækka í fyrstu viðskiptum og hækkanir héldu áfram í allan dag. Þegar Kauphöll var lokað klukkan 15:30 stóð gengið í 452 krónum, sem gerir hækkun upp á 22 prósent. Gengið hefur ekki verið hærra síðan þann 1. apríl síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×