Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Lovísa Arnardóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 3. júní 2026 21:47 Hörður Ægisson er ritstjóri Innherja. Stöð 2 Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, segir engan fjárfesti eða hluthafa leggja meira fé til Icelandair fyrr en búið sé að skapa samkeppnishæft módel um rekstur félagsins. Hann segir stöðu félagsins tvísýna og erfiða.
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar annað kvöld. Fundurinn á að snúast um vinnufyrirkomulag flugmanna, vaktir, frídaga og svigrúm Icelandair til að skipuleggja flug. Fleiri mál hanga þó yfir viðræðunum, meðal annars fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY Europe á Möltu og þungur rekstur. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna koma saman hjá ríkissáttasemjara klukkan sjö annað kvöld. Þetta verður fyrsti fundur aðilanna síðan á föstudag. Viðræðurnar hafa gengið hægt og lítið virðist hafa þokast í átt að samkomulagi. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir kvöldfundinn skýrast af því að ekki hafi tekist að koma fólki saman á öðrum tíma. Fundurinn snýst um vinnufyrirkomulag flugmanna, vaktir, frí og skipulag og það svigrúm sem Icelandair telur sig þurfa á flugáætlun. Þá blandast í deiluna einnig málefni er varða framtíðarrekstur Icelandair. Vinnuframlag flugmanna jókst um 22 prósent eftir síðustu kjarasamninga, sem var liður í endurreisn Icelandair. Nú vill Icelandair fá meira svigrúm til að nýta mannaflann betur. Flugmenn vilja á móti verja réttindi sín gagnvart þeirri kröfu. Um tuttugu ferðir Icelandair hafa fallið niður vegna mönnunarvanda að undanförnu. Icelandair segir flugmenn ekki selja frídaga en flugmenn segja félagið ekki geta byggt áætlunina á slíku. Inn í deiluna blandast einnig fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY europe á Möltu og auknar heimildir til að leigja flugvélar með áhöfnum frá öðrum félögum. Þar er meðal annars horft til áhrifa á störf flugmanna og rekstur Icelandair. Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, var til viðtals í kvöldfréttum Sýnar um erfiða stöðu Icelandair. Hörður segir forstjóra Kviku í síðustu viku hafa hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði að ekki væri hægt að mjólka dauða kú. Eins og hafi komið fram í fréttum sé ekki langt síðan farið var í víðtæka fjárhagslega endurskipulagningu á Icelandair og samhliða efnt til 23 milljarða útboðs, sumarið 2020. Það hafi verið byggt á þeim forsendum að hægt væri að bæta reksturinn og byggja félagið upp aftur. „Sex árum síðar er staðan mjög tvísýn, félagið hefur ekki skilað arði nú í níu ár, samfellt rekstrartap meira og minna á því tímabili,“ segir Hörður og að rekstrartapið bara í fyrra hafi verið um þrír milljarðar. Væntingar sem stjórnendur hafi gefið út í byrjun árs séu foknar um veður og vind. Hann segir suma greinendur ætla að rekstrartapið fimmfaldist og verði yfir tíu milljarðar. Það sé margt í umhverfinu á móti rekstrinum eins og hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn vestur til Bandaríkjanna. Glíma við hátt raungengi „Síðan og kannski ekki síst er Icelandair, eins og mörg útflutningsfyrirtæki á Íslandi, að glíma við feikilega hátt raungengi krónunnar, ekki hvað síst gagnvart Bandaríkjadal,“ segir Hörður og að það skipti félagið miklu máli. „Þegar þetta er staðan sem ég lýsi, gríðarlega erfitt samkeppnisumhverfi og félagið er að tapa, þá er eðlilegt, myndi maður halda, að það sé spurt, eins og Marinó nefnir í þessari líkingu við mjólkurkúna: Hvað er til skiptanna í svona samningum?“ Hörður segir stöðu félagsins þannig afar erfiða og flókna og þó svo að gengi félagsins sé 67 aurar á hlut vilji enginn fjárfestir líta við því. Gengið hafi aldrei verið lægra. Hann telur ólíklegt að fjárfestar leggi félaginu meira fé haldi því áfram að blæða eins og því hefur gert síðustu mánuði. Verði að sjá uppstokkun á kjarasamningum við flugstéttina Ekki nema þeir sjái uppstokkun á kjarasamningum við flugstéttina sem miðar að því að bæta samkeppnishæfni félagsins, ekki til skamms tíma, heldur til langs tíma. „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki og það kann að vera að við á Íslandi höfum okkar hugmyndir um hver eigi að vera launin en þegar um ræðir félag eins og Icelandair sem er einvörðungu að keppa á erlendum samkeppnismarkaði, við erlend flugfélög, þá hefur það ekkert sérstaklega mikið gildi þegar allar aðrar breytur í rekstri Icelandair eru liðir sem félagið getur illa ráðið við,“ segir Hörður og nefnir gengi gjaldmiðilsins, hækkun á eldsneytisverði og fjármagnskostnað. Þá skipti miklu máli að vera samkeppnishæfur, sérstaklega þegar kemur að launakostnaði, en hann sé fjórðungur í hlutfalli við tekjur Icelandair. Ekki sjálfbært til lengdar Spurður hvort það séu líkur á að Icelandair fari sömu leið og WOW og Play segir Hörður að hann vilji ekkert fullyrða. Félagið standi fjárhagslega sterkt og ólíkt til dæmis Play hvað það varðar. „Það er eins og flestir ættu að vita, sérstaklega hérna á Íslandi, hlutirnir á flugmarkaði geta breyst á svipstundu og það er ljóst að félag sem er að blæða eins miklum fjármunum í hverjum ársfjórðungi eins og við höfum séð undanfarin misseri hjá IOcelandair, það getur ekki lifað mjög lengi. Þetta er ekki sjálfbært til lengdar,“ segir hann og að þá þurfi að koma til fjármagn frá núverandi hluthöfum eða fjárfestum en peningarnir muni ekki koma nema það sé til samkeppnishæft módel í kringum rekstur félagsins. „Þar skipta ekki hvað síst máli kjarasamningar við þessar flugstéttir.“
Icelandair Flug Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Tengdar fréttir „Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. 28. maí 2026 11:06 Varar við „alvarlegri stöðu“ sem geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir félagið Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur. 17. maí 2026 13:07 Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira
„Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. 28. maí 2026 11:06
Varar við „alvarlegri stöðu“ sem geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir félagið Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur. 17. maí 2026 13:07