Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Andri Broddason skrifar 2. júní 2026 08:31 Óskar Borgþórsson hefur bryjað tímabilið frábærlega með Víkingum Bjarni/Vísir Óskar Borgþórsson hefur byrjað frábærlega með liði Víkinga í Bestu deild karla. Hann mætti seint á æfingu liðsins fyrir leik gegn Val en bætti upp fyrir það með því að skora þrennu. „
Ég var hátt uppi í gær en maður er kominn á jörðina, lífið heldur bara áfram.“ Óskar var léttur í viðtali daginn eftir að hafa skorað þrennu gegn Val í níundu umferð Bestu deildar karla þar sem Víkingar unnu 5-1. Í viðtali eftir leik viðurkenndi Óskar að hafa sofið yfir sig og mætt of seint á æfingu fyrir leikinn. „Þetta var algjör skita. Ég bara gleymdi að setja vekjaraklukku,“ sagði Óskar og vaknaði við að Daníel Hafsteinsson, liðsfélagi hans í Víking, hringdi í hann þegar liðsfundur var byrjaður. „Ég vissi nákvæmlega hvað var í gangi, labbaði inn í algjörri þögn. Þetta var svo óþægilegt.“ Víkingur hefur átt draumabyrjun á tímabilinu og hefur ekki enn þá tapað leik. Gengi Óskars í Bestu deildinni hefur verið í takt við gengi Víkings þar sem hann er búinn að skora átta mörk og leggja upp fjögur í aðeins tíu leikjum. „Maður er bara að borða hollt og vera glaður.“ segir Óskar um velgengni sína á tímabilinu en lífsgleðin hefur einkennt persónuleika hans bæði innan og utan vallar. Viðtöl við hann eftir leiki hafa vakið athygli og einkennst af skemmtilegum persónuleika Óskars. „Það er svo erfitt og skemmtilegt að fara í viðtal eftir leiki. Andrenalínið er lengst uppi.“ Áður en Óskar varð leikmaður Víkings var hann hjá Sogndal í Noregi. Miðað við velgengni hans á tímabilinu gæti hann mögulega fengið tækifæri til að fara aftur út í atvinnumennsku. „Ef það kemur eitthvað skemmtilegt lið, þá er maður til í að skoða það.“ Óskar bætir þó við að honum líði vel hjá Víking og sé ekkert að drífa sig út. „Lífið leiðir það í ljós hvernig þetta fer.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira