Neytendur

Inn­kalla pipar vegna eiturs

Árni Sæberg skrifar
Sichuan-pipar á ekki að innihalda mikið skordýraeitur.
Sichuan-pipar á ekki að innihalda mikið skordýraeitur.

Eftir samráð við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur Dai Phat Asian Grocery innkallað vöruna Villta Sichuan-piparinn. Ástæðan er sú að varan inniheldur skordýraeitur yfir leyfilegu hámarksgildi.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að eftirfarandi upplýsingar auðkenni innkallaða vöruna:

  • Vöruheiti: Villti Sichuan-piparinn
  • Best fyrir: 30. apríl 2027 og 30. júní 2027
  • Framleiðandi: EAGLOBE
  • Upprunaland: Kína

Viðskiptavinir sem hafi keypt vöruna sé bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×