Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda Guðjón Heiðar Pálsson og skrifa 31. maí 2026 15:30 Formáli. Undanfarnar vikur hefur alþjóðleg umræða um vaxandi áhrif mannauðssviða og vinnustaðamenningar varpað ljósi á spurningu sem fáir ræða opinskátt: Hver stjórnar í raun skipulagsheildum eins og fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum o.s.frv? Um leið vakna áhugaverðar spurningar um hvernig vald dreifist í nútíma skipulagi. Sjónarhorn greinarinnar mótast ekki aðeins af alþjóðlegri umræðu eða boðskiptafræði heldur einnig af reynslu höfundar af stofnun, rekstri og stjórnun eigin fyrirtækja, að hluta til í eigu erlendra stórfyrirtækja, í rúmlega tvo áratugi. Jafnframt byggir það á áratuga samstarfi sem sérfræðiráðgjafi við leiðtoga, stjórnendur og fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök af ólíkri stærð og gerð, bæði hér á landi og erlendis. Þar hefur ítrekað komið í ljós að breytingar á menningu, orðræðu og innri samskiptum hafa oft mun meiri áhrif á valdastöðu, stjórnarhætti og stjórnunarhætti en formleg skipurit gefa til kynna. Slíkar breytingar snúast sjaldnast eingöngu um ferla eða skipulag heldur einnig um hvernig fólk skilgreinir hlutverk, ábyrgð, áhrif og jafnvel hvað telst eðlileg hegðun innan viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Smám saman myndast ákveðin skynheild; sameiginleg upplifun og skilningur á því hvað telst rétt, æskilegt og samþykkt innan kerfisins. Auðvitað er þróunin mismunandi milli fyrirtækja og víða gegna mannauðssvið mikilvægu og vel skilgreindu hlutverki. Greinin fjallar fyrst og fremst um ákveðna þróun sem virðist vera að verða sýnilegri í fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum, bæði hér á landi og víðar á Vesturlöndum, óháð stærð. Undanfarið hafa komið fram nokkur áberandi dæmi erlendis sem endurspegla þessa umræðu. Í Bandaríkjunum vakti athygli þegar forstjóri fintech-fyrirtækisins Bolt gagnrýndi opinberlega vaxandi áhrif mannauðskerfa innan fyrirtækja. Hvort menn eru sammála þeirri gagnrýni eða ekki skiptir minna máli en hitt að umræðan sjálf er farin að verða sýnilegri. Á sama tíma hafa fjölmörg fyrirtæki vestanhafs og í Evrópu endurskoðað stefnu sína í vinnustaðamenningu, inngildingu og innri stjórnun eftir að gagnrýni jókst á að menningarstjórnun og orðræðustýring gætu farið að hafa áhrif á frumkvæði, ákvarðanatöku og stjórnunarhæfni starfseminnar sjálfrar. Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda Í grunni boðskiptafræða er sefjun boðmiðlunar, hvort sem hún er ljós eða dulin, stóra breytan í menningarbreytingum skipulagsheilda eins og fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og annarra mannlegra kerfa, óháð stærð. Menning verður ekki til í tómarúmi heldur í gegnum tíðni, stöðug skilaboð, endurtekningu, viðmið, orðræðu og félagslegt samþykki, svo dæmi séu tekin. Þess vegna eru boðskipti ekki aðeins tæki til upplýsingagjafar og boðmiðlunar heldur sjálft stjórnkerfi menningar.Þróun mannauðsvaldsins má í grófum dráttum rekja í nokkrum stigum. Fyrsta stigið var hefðbundið starfsmannahald (Personnel Administration) þar sem áherslan var fyrst og fremst á ráðningar, launamál og stjórnsýslu. Síðar þróaðist það yfir í mannauðsstjórnun (Human Resources Management – HRM) þar sem vinnustaðamenning, leiðtogafræði og innri boðskipti fengu aukið vægi. Um og eftir síðustu aldamót tók þróunin síðan stórt stökk með alþjóðavæðingu fyrirtækja, samfélagsmiðlum, orðsporsáhættu, ESG-hugsun (Environmental, Social and Governance eða umhverfi, samfélagsábyrgð og stjórnarhættir), DEI-hugsun (Diversity, Equity and Inclusion eða fjölbreytileiki, jafnræði og inngilding) og nýrri stjórnunarmenningu. Ísland stökk snemma á þann vagn, bæði innan hins opinbera og margra fyrirtækja. Við það þróaðist mannauðskerfið víða úr hefðbundnu stoðkerfi yfir í áhrifamikið menningar- og orðræðukerfi sem fór smátt og smátt að hafa áhrif á sjálfa skynheild skipulagsheildarinnar. Samhliða þessu höfðu mannauðsmál einnig ómeðvitað vaxandi áhrif á ímyndarvinnu fyrirtækja og stofnana, þar sem ímynd grundvallast að stórum hluta á þeim eiginleikum sem starfsfólk endurspeglar í hegðun, samskiptum og menningu viðkomandi skipulagsheildar. Athyglisvert er að víða virtust þó lítil eða engin raunveruleg tengsl vera milli þess vaxandi mannauðsvalds og þeirra sem unnu að staðfærslu, ímyndarmótun og stefnulegri sérstöðu skipulagsheildarinnar út á við. Við það jókst misvísun skilaboða sem eru dýrustu skilaboð sem skipulagsheildir senda frá sér. Þegar nýtt vald tekur yfir Á síðustu árum hefur orðið til nýtt valdakerfi í fyrirtækjum sem fáir ræða opinskátt. Það er hvorki formlegt framkvæmdavald né eignarvald. Þetta er menningarlegt vald. Mannauðsvald. Upphaflega átti mannauðssvið, óháð stærð, að styðja starfsfólk, bæta samskipti og hjálpa stjórnendum að byggja upp heilbrigt starfsumhverfi. Í dag virðist hlutverkið sums staðar orðið mun stærra. Mannauðskerfið er í auknum mæli farið að skilgreina ekki aðeins hegðun starfsfólks heldur einnig orðræðu, viðhorf, siðferði og jafnvel hvað telst ásættanleg hugsun innan viðkomandi fyrirtækis. Hefðbundið stjórnkerfi fyrirtækja byggðist áður á skýrri forystu stjórnarformanns, forstjóra og framkvæmdastjóra. Í dag virðast sumir stjórnendur finna fyrir auknu valdleysi og jafnvel valdmissi. Aðrir eru ómeðvitaðir um að hægt og bítandi sé verið að færa áhrif og stjórnunarvald annað innan kerfisins. Þegar menning verður að valdi Þetta er áhugaverð þróun. Víða myndast annað lag valds sem starfar í gegnum gildi, jafnvel óskilgreind, siðareglur sem stundum eru einnig óskýrar, námskeið af ólíkum gerðum og tegundum, innri orðræðu, hegðunarstaðla og félagsleg viðmið. Þetta getur þýtt að andstæður myndist innan viðkomandi fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka, t.d. milli kynja, aldurs og uppruna.Þetta vald er sjaldan skilgreint hart. Það birtist ekki með skipunum eða refsingum heldur með menningarlegum þrýstingi. Smám saman myndast ákveðin skynheild innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar; sameiginleg tilfinning fyrir því hvað megi segja, hugsa, gagnrýna eða jafnvel efast um. Starfsfólk lærir fljótt hvaða orð, skoðanir og áherslur eru „réttar“ og hverjar geta skapað áhættu fyrir eigin starfsferil. Það er ekki ný hugsun að vald haldist ekki aðeins með lögum eða yfirboði heldur einnig með því að móta hvað telst eðlilegt, siðlegt og samþykkt. Þegar slíkt vald verður mjög sterkt t.d. í fyrirtækjum skapast ný staða: aðalframkvæmdastjóri eða forstjóri hefur minna vald og stjórnar minna en menningarkerfið sjálft. Margir þekkja sig kannski hér, eftir á að hyggja. Í mörgum fyrirtækjum virðist þróunin jafnvel komin lengra. Gamla setningin um að „menning éti allar stefnur í morgunmat“ virðist víða ekki lengur nægilega lýsandi. Menningaraflið er í auknum mæli farið að móta eigin stefnu, eigin viðmið og eigin valdakerfi inni í skipulagsheildinni sjálfri. Við það getur mannauðsvaldið smám saman farið að skapa eigin skynheild innan kerfisins; sameiginlegan skilning á því hvað telst rétt, ásættanlegt og æskilegt. Eftir því sem sú skynheild styrkist getur hún farið að verða það sem skipulagsheildin stendur í raun fyrir, fremur en sú stefna og sýn sem leiðtogi og stjórn ákváðu upphaflega. Þá vakna einnig spurningar um hvort hin þekkta skilgreining heimspekingsins á menningu sem „að gera það vel sem gert er“ nái enn að lýsa þeirri þróun sem á sér stað í sumum nútímafyrirtækjum og stofnunum. Þegar stjórnendur missa stjórn Merkilegt er að þessi þróun kemur oft fram undir jákvæðum formerkjum eins og vellíðan, virðingu, jafnrétti, öryggi, inngildingu og góðri vinnustaðamenningu. Allt hefur þetta sinn tilgang. Aðalvandinn byrjar þegar menningarstjórnun verður það sterk að starfsfólk hættir að þora að tala frjálst, efast eða gagnrýna. Þá færist skipulagsheildin hægt frá því að vera rekstrarleg og fjárhagsleg starfsemi yfir í hugmyndakerfi. Ein af stærri spurningunum sem þessi þróun vekur snýr að ábyrgðinni sjálfri. Þegar menningarlegt vald verður mjög áhrifamikið innan fyrirtækja geta ákvarðanir, orðræða og innri þrýstingur farið að hafa áhrif á rekstraráhættu, stefnu og jafnvel verðmætasköpun fyrirtækisins sjálfs. Ef slík þróun leiðir til óvissu, innri veikleika eða rekstrarlegs tjóns liggur ábyrgðin hins vegar sjaldnast hjá menningarkerfinu sjálfu heldur endar hún yfirleitt hjá eigendum, stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins. Þar vaknar áhugaverð spurning um samband valds og ábyrgðar: Hversu mikið áhrifavald getur kerfi haft án þess að bera beina rekstrarlega ábyrgð á afleiðingunum? Mörg fyrirtæki heims glíma nú við þessa spennu: Hvernig á að byggja upp sterka menningu án þess að menningin sjálf verði að ósýnilegu valdakerfi? Þetta er líklega ein af mikilvægustu stjórnunarspurningum samtímans. Þegar hugmyndir missa kraft Afleiðingarnar geta orðið djúpar. Frumkvæði minnkar, sjálfstæð hugsun veikist og stjórnendur fara smám saman að stjórna með varfærni fremur en skýrri stefnu og ábyrgð. Þá getur myndast menning þar sem öryggi orðræðunnar verður mikilvægara en árangur starfseminnar sjálfrar. Í slíku umhverfi hættir fólk síður að taka áhættu, segja óþægilegan sannleika eða benda á veikleika kerfisins. Skipulagsheildir sem missa þann eiginleika missa hægt og bítandi hæfileikann til sjálfsgagnrýni, aðlögunar og raunverulegrar forystu. Þá getur hefðbundið sköpunarferli einnig veikst. Hugmyndir verða varfærnari, staðlaðri og síður mótandi.Í stað frjálsrar hugmyndavinnu getur myndast annars konar hugmyndakerfi þar sem félagslegt samþykki og menningarlegt öryggi fær meira vægi en frumleiki, djörfung og raunveruleg nýsköpun. Með tímanum getur einnig myndast lokuð skynheild þar sem nýjar hugmyndir eru ekki metnar fyrst og fremst út frá gæðum heldur út frá því hvort þær falli innan ríkjandi menningarlegs samþykkis. Þegar menningarvaldið fer að skapa eigin skynheild án skýrrar ábyrgðar er skipulagsheildin ekki lengur aðeins að breytast; hún er farin að stjórnast af öðru afli en því sem var formlega falið að leiða hana. Lausnina má hugsanlega finna í því að hugsa stefnulega; vera meðvitaður um hvað gæti hugsanlega gerst í þessum efnum - samtímis hafa rétt bjargráð til að grípa til áður en skipulagsheildin missir stjórn á eigin stefnu, menningu og ábyrgð. Nema menn vilji þessa hægu byltingu.Höfundur er boðskiptafræðingur, álits- og ráðgjafi í samanburði og aðgreiningu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mannauðsmál Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun