Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Lovísa Arnardóttir skrifar 31. maí 2026 11:01 Farþegar eru nú á bið í London, Róm og Glasgow auk þeirra sem bíða á Íslandi. Vísir/Anton Brink Búið er að aflýsa sex flugferðum Icelandair í dag vegna áhafnaskorts í flugstjórnarklefa. Það staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, í samtali við fréttastofu.
Flugferðunum sem er búið að aflýsa var til og frá Glasgow, Rómar og til Gatwick í London. Ásdís segir Icelandair vinna að því að koma farþegum á sinn áfangastað. Fjölda flugferða hefur verið aflýst í vikunni vegna áhafnarskorts en flugmenn Icelandair standa í kjaradeilu. Ekki hefur verið boðað til verkfalls en Icelandair segir flugmenn hafa samstillt hætt að selja frídaga, líkt og gerðist í kjaradeilu árið 2014. Flugmenn hafna því og segja ábyrgðina liggja hjá Icelandair. Félagið hafi lagt upp með flugáætlun sem stæði og félli með því að hægt væri að kaupa frídaga af flugmönnum. Kjaradeilan snýst um vinnuframlag flugmanna og kröfur flugfélagsins um aukinn sveigjanleika. Þar undir falla meðal annars heimildir til að leigja flugvélar með áhöfnum frá öðrum flugfélögum og breytingar á forgangsrétti flugmanna til alls flugs á vegum félagsins. Funduðu á föstudag Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) funduðu hjá ríkissáttasemjara í vikunni en viðræður þokast hægt og enn er ekkert samkomulag í sjónmáli. Flugmenn hafa verið samningslausir frá síðasta hausti. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn. Samninganefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, fundaði með samninganefnd Icelandair á föstudag en ekki hefur verið boðað til annars fundar. Fjölmiðlabann hefur verið sett á deiluna og vísa því báðir aðilar á Ástráð Haraldsson ríkissáttasemjara í samtali við fréttastofu. Hann mun boða til næsta fundar um helgina. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar.
Kjaramál Icelandair Flug Bretland Skotland Ítalía Tengdar fréttir Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. 29. maí 2026 18:12 Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29. maí 2026 13:37 Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag. 29. maí 2026 12:02 Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira
Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. 29. maí 2026 18:12
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29. maí 2026 13:37
Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Enn ber talsvert á milli Icelandair og flugmanna í kjaradeilu félaganna. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu í morgun. Icelandair hefur aflýst fimm áætlunarferðum í vikunni vegna mönnunarvanda, þar af tveimur í dag. 29. maí 2026 12:02