Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Smári Jökull Jónsson skrifar 30. maí 2026 13:00 Guðmundur Karl segir háskólann ekki endilega hólpinn. Aðsend og Vísir/Vilhelm Sérfræðingur í netöryggi segir Háskóla Íslands ekki hólpinn þrátt fyrir að búið sé að endurheimta aðgang að námsumsjónarvef eftir netárás á dögunum. Þá sé tímaspursmál hvenær kennitölur verða nýttar í stórri árás.
Netárásum fer sífellt fjölgandi hér á landi og í upphafi mánaðarins var ein slík gerð á námsumsjónarkerfið Canvas þar sem netþrjótar komust meðal annars yfir upplýsingar um nemendur í Háskóla Íslands. „Það sem svikararnir geta nýtt sér eru þessi gögn, því þeir eru í raun að búa til prófíl um þá sem þeir ætla síðan að ráðast á. Þeir þurfa jafnvel ekki einu sinni að gera það, það er bara sjálfvirkt. Þeir skrapa kannski netið og ef þeir finna þessi gögn þá er þetta rosalega gott fóður í svik seinna meir,“ segir Guðmundur Karl Karlsson sérfræðingur í netöryggi hjá Defend Iceland. Þegar árás sem þessi sé gerð þurfi að bíða og sjá hvort gögnum verði lekið. Þrátt fyrir að lausnargjald hafi verið greitt séu fórnarlömbin ekki hólpin. „Það þýðir ekkert endilega að það sé búið fyrir skólann, þeir geta komið til baka eftir sex mánuði eins og dæmi hafa sýnt með Shinyhunters. Einhver hefur greitt þeim fyrir upplýsinga, fyrir að leka þeim ekki en gögnin láku samt. Eins og þeir hafi selt gögnin áfram og þá var einhver annar sem fór síðan og kúgaði sama fyrirtæki.“ Þá séu svik gagnvart einstaklingum sífellt að verða trúverðugri. Veikleikar fyrirtækja séu jafnvel nýttir á þann hátt að þrjótar geti sent út pósta frá sjálfu fyrirtækinu. Vitundarvakningu þurfi hér á landi og Guðmundur nefnir að hann hafi sérstakar áhyggjur af kennitölum Íslendinga. „Þær eru mjög misnotaðar og alltof oft notaðar í auðkenningu og fleira. Ég held það sé bara tímaspursmál áður en það verður nýtt í einhvers konar stóra árás. Ég hef áhyggjur af því, við höfum oft verið mjög kærulaus,“ segir Guðmundur Karl.
Netglæpir Netöryggi Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Sjá meira