Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Lovísa Arnardóttir skrifar 30. maí 2026 11:56 Sveinn H. Jensson, oddviti meirihlutans, og Sigurjón Andrésson, nýr sveitarstjóri. Aðsend Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní.
Í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí sl. hlaut D-listinn og óháðir 199 atkvæði og þrjá sveitarstjórnarfulltrúa kjörna, og þar með hreinan meirihluta í sveitarstjórn. Ö-listinn hlaut 121 atkvæði og tvo fulltrúa. „Við erum afar ánægð með að Sigurjón hafi samþykkt að taka við starfi sveitarstjóra Skaftárhrepps. Reynslan og þekkingin sem hann býr yfir mun nýtast vel í þeim mikilvægu verkefnum sem fram undan eru,“ segir Sveinn H. Jensson, oddviti D-listans og óháðra, í tilkynningu. „Sigurjón býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun, sveitarstjórnarmálum, stefnumótun og mannauðsmálum. Hann hefur gegnt starfi bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá árinu 2022 og hefur jafnframt umtalsverða reynslu af verkefnastjórnun, breytingastjórnun og umbótastarfi,“ segir í tilkynningunni en meirihlutinn féll í Hornafirði eins og í Skaftárhreppi. Sigurjón segist hlakka til samstarfsins og verkefnanna fram undan. „Ég er bæði spenntur og þakklátur fyrir þetta tækifæri. Fram undan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með íbúum, starfsfólki og sveitarstjórn að áframhaldandi þróun og uppbyggingu Skaftárhrepps.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarfélagið Hornafjörður Skaftárhreppur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira