Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Jón Þór Stefánsson skrifar 28. maí 2026 16:48 Héraðsdómur Norðurlands-eystra dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hlaut í gær skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að ráðast á dóttur sína á heimili þeirra í febrúar 2024.
Manninum var gefið að sök að ógna lífi, heilsu og velferð dótturinnar með alvarlegum hætti með því að ráðast á hana. Það mun faðirinn hafa gert þegar hún var að reyna að stöðva deilur hans við eiginkonu sína, móður dótturinnar. Í ákæru segir að hann hafi slegið dóttur sína með flötum lófa í andlitið tvisvar, svo hafi hann tekið hana niður í gólf og sparkað í líkama hennar meðan hún lá. Svo, þegar hún var að standa upp og reyna að komast undan honum, hafi hann gripið um úlnliði hennar, dregið hana til sín og ýtt henni upp við vegg þannig að hnakki hennar skall við vegginn. Þar á eftir hafi hann tekið hana hálstaki, náð henni aftur í gólfið, og dregið hana eftir gólfinu með því að halda í hettu á peysu dótturinnar. Fyrir vikið segir að dóttirin hafi hlotið ýmsa áverka, þar á meðal vægan heilahristing. Dóttirin og móðirin vildu ekki gefa skýrslu fyrir dómi, en við úrvinnslu málsins var litið til framburðar þeirra hjá lögreglu. Faðirinn hins vegar bar vitni hjá héraðsdómi. Föðurnum og dótturinni bar saman um að hún hafi reiðst honum vegna deilna við móðurina, þá voru þau einnig sammála um að dóttirin hafi átt upptökin að líkamlegum átökum þeirra, með því að reka föður sínum löðrung. Samkvæmt dómnum ríkir síðan nokkur óvissa um atburðarásina eftir það. Það sé bæði vegna þess að dóttirin hafi sagst eiga erfitt með að muna í hvaða röð atvikin áttu sér stað, og vegna þess að faðirinn var undir áhrifum áfengis. Hann játaði þó að hafa slegið dóttur sína einu sinni, og var það lagt til grundvallar. Þá þótti dómnum gögn málsins ekki sýna fram á að hann hafi tekið hana niður í jörðina og sparkað í hana þar, og heldur ekki að hann hafi dregið hana um gólfið haldandi í hettu peysu hennar. Þar að auki taldist ekki sannað að hann hafi tekið hana hálstaki. Hins vegar var talið sannað að hann hafi ýtt henni upp við vegg þannig að höfuð hennar skall við vegg. Þá segir í dómnum að þrátt fyrir að dóttirin hafi átt upptökin að átökum þeirra þá hafi, meðal annars vegna aflsmunar þeirra, viðbrögð hans verið úr öllu hófi. Líkt og áður segir hlaut faðirinn skilorðsbundinn dóm, nánar tiltekið 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Dómsmál Fjölskyldumál Heimilisofbeldi Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira