Gervigreindargjöf til lýðræðisins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. maí 2026 13:12 Elvar Þormar, eigandi Reon, vonast til þess að verkfærið hjálpi fólki að nálgast heimildir og taka upplýsta ákvörðun. Hulda Margrét Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur hleypt af stokkunum gervigreindarvef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst næstkomandi. Sölustjóri segir fólk ekki lengur hafa neina afsökun til að taka upplýsta og meðvitaða ákvörðun. Lagt er upp með að vefurinn sé hlutlaus.
Um er að ræða vefinn jaedanei.is. Að óbreyttu ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst þar sem svara á þeirri spurningu hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í tilkynningu frá Reon segir að vefurinn hafi verið hannaður til að styðja kjósendur við að afla sér upplýsinga og mynda sér skoðun byggða á staðreyndum. Gervigreindarvefurinn sé sjálfstæður og óháður, svari spurningum á íslensku, ensku og pólsku, byggi á alvöru heimildum frá báðum hliðum umræðunnar ásamt opinberum frumheimildum. Á vefnum má finna algengar spurningar og spjallmenni sem útskýrir bæði grunnatriði og umdeildari álitaefni tengd kosningunni. „Markmiðið er ekki að segja fólki hvað það eigi að kjósa heldur að gera upplýsingarnar aðgengilegri,“ segir Elvar Þormar, eigandi Reon, í tilkynningu. „Umræðan um ESB-aðild er flókin og oft mjög tilfinningaþrungin. Við vildum búa til verkfæri sem hjálpar fólki að nálgast heimildirnar sjálfar og mynda sína eigin skoðun á þessu málefni.“ Díana Dögg Víglundsdóttir segir enga afsökun lengur til að taka ekki upplýsta ákvörðun.Hulda Margrét Heimildasafn vefsins inniheldur meðal annars efni frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands,Landskjörstjórn, Stjórnarráðinu, Feneyjanefnd Evrópuráðsins, Evrópuhreyfingunni, Heimssýn og fleiri aðilum úr báðum fylkingum umræðunnar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á áreiðanleika svara og stuðning við íslensku. „Nú er engin afsökun til að taka ekki upplýsta og meðvitaða ákvörðun þann 29. ágúst byggða á staðreyndum en ekki tilfinningum,“ segir Díana Dögg Víglundsdóttir, sölustjóri hjá Reon. „jaedanei.is er gjöf Reon til lýðræðisins. Við vildum sýna hvernig hægt er að nota gervigreind til að auka gagnsæi og einfalda upplýsingamiðlun á flóknu efni.“ Vefurinn er ókeypis í notkun, án auglýsinga og án persónurakninga. Verkefnið er þróað og fjármagnað af Reon án utanaðkomandi styrkja. Reon er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem býr til tækni með tilgang og sérhæfir sig í stafrænni vöruþróun og lausnum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Tækni Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira