„Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Bjarki Sigurðsson skrifar 28. maí 2026 13:13 Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur. Sýn Verðbólga hjaðnaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og mælist 5,1 prósent. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir innflutta verðbólgu vegna átaka við Persaflóa reynast erfiða.
Verðbólguspár bankanna voru alls konar, Íslandsbanki gerði ráð fyrir að hún stæði í stað á meðan Landsbankinn spáði hjöðnun um 0,3 prósentustig. Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafði 0,32 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir lækkunina koma ánægjulega á óvart. „Þessi lækkun er í takt við það sem við gerðum ráð fyrir. Verð á eldsneyti hefur verið að hækka erlendis þannig að ef ekki hefði komið til virðisaukaskattslækkunarinnar hefði eldsneyti eflaust hækkað meira. En þetta er í takt við væntingarnar,“ segir Bergþóra. Mikil óvissa sé í hagkerfinu, þá sérstaklega vegna ytri áhrifa, svo sem stríðs Bandaríkjanna og Íran. „Það er útlit fyrir að við munum flytja inn einhverja verðbólgu næstu mánuði. Við búumst við því að verðbólga verði yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. En þessar tölur eru undir væntingum þannig það er ekki öll von úti. Maður reynir að halda í vonina um að þetta takist,“ segir Bergþóra. Ánægjulegt sé að matvörur sem stóðu í stað í síðasta mánuði séu að lækka núna í verði. „Við gerum ráð fyrir að verðbólga hjaðni. En hún er rosalega há eins og staðan er núna. Hún hefur verið yfir markmiði í sex ár. Við þurfum að fara að spýta í lófana til að ná verðbólgunni niður. Það mun taka tíma, það eru alls konar áföll sem dynja yfir okkur en við höfum lítið að segja um þessi ytri áhrif og þurfum að standa þau af okkur. Vonandi verða áhrifin sem minnst,“ segir Bergþóra.
Verðlag Íslandsbanki Fjármál heimilisins Neytendur Bensín og olía Skattar, tollar og gjöld Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira