Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Lovísa Arnardóttir skrifar 28. maí 2026 10:23 Grillað verður úti og svo hægt að borða inni og úti. Vísir/Vilhelm og Sigurjón Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíð Íslands verður haldin í Kolaportinu um helgina. Um er að ræða fyrstu matarhátíðina á Íslandi sem helguð er BBQ- og reykmatargerð. Hátíðin er haldin af Götubitanum.
Að baki hátíðinni stendur Götubitinn, undir stjórn Róberts Arons Magnússonar. „Með yfirskriftinni „Reykur, eldur, stemning“ sækir RVK BBQ Festival 2026 innblástur til stórra erlendra hátíða á borð við Meatopia í London. Markmiðið er að leiða saman færustu grillara landsins, spennandi framleiðendur og matgæðinga í einstakri upplifun þar sem eldurinn er í aðalhlutverki,“ segir í tilkynningu um hátíðina. Þar muni koma saman helstu grillarar landsins til að sýna listir sínar. Bæði verði þar þekkt nöfn og ástríðufullir áhugagrillarar. Margs konar kjöt í boði Meðal þeirra sem grilla á hátíðinni eru Hjalli & Ingo en þeir verða með kolagrillaða nautalund í japanskri szechuan stíl í mini-hamborgarabrauði með confit hvítlaukssósu. Siggi Grill verður með þriggja laga kjötloku auk baby back ribs sem verða reykt og grilluð. Sælkerabúðin mun svo bjóða upp á hægelduð nautarif, brokkolísalat og nýja grillsósu. Grillaðir bjóða svo upp á lambakonfekt, Iberico Secreto, kartöflusalat, pikklaðan rauðlauk, piparrótarsósu og chimichurri og Þórarinn kokkur verður með Picanha með Churrasco-aðferð, sem er brasilískur grillstíll. Til viðbótar við verður Weber-grillsýning á svæðinu þar sem gestir geta kynnt sér grillin frá merkinu. Þá mun Sælkerabúðin setja upp sérstaka verslun (pop-up) á hátíðinni. Helstu upplýsingar um hátíðina: Hvenær: 30.–31. maí 2026 (laugardag kl. 12:00–21:00, sunnudag kl. 12:00–18:00). Hvar: Kolaportið, Reykjavík. Frítt inn: enginn aðgangseyrir Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á www.bbqfestival.is
Menning Matur Reykjavík Samkvæmislífið Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira