Sport

Tveir hand­teknir grunaðir um að vera í glæpa­gengi sem herjar á í­þrótta­fólk

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Patrick Mahomes og Travis Kelce, leikmenn Kansas City Chiefs, hafa báðir orðið fyrir barðinu á suðurameríska glæpagenginu. 
Patrick Mahomes og Travis Kelce, leikmenn Kansas City Chiefs, hafa báðir orðið fyrir barðinu á suðurameríska glæpagenginu.  Michael Reaves/Getty Images

Lögreglan í Argentínu hefur lagt hald á tvo ríkisborgara Síle, sem eru grunaðir um að vera hluti af alþjóðlegu glæpagengi sem herjar á íþróttafólk.

Handtökurnar voru framkvæmdar á mánudag í nágrenni við Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. ESPN greinir frá.

Samkvæmt lögreglu eru mennirnir tveir frá Síle,Ignacio Zuniga Cartes og Bastian Jimenez Freraut grunaðir um að tilheyra þjófagengi sem hefur brotist inn á heimili Patrick Mahomes og Travis Kelce, leikmanna Kansas City Chiefs í NFL deildinni, og tennisstjörnunnar Juan Martin del Potro, meðal annarra.

Þjófagengið er einnig grunað um innbrot á heimili Joe Burrow, leikstjórnanda Cincinnati Bengals, og Bobby Portis, framherja Milwaukee Bucks í NBA deildinni.

FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, hefur áður varað íþróttafólk við hættunni sem stafar af innbrotsþjófunum.

Þetta tiltekna gengi er sagt fylgjast grannt með íþróttafólki og ferðavenjum þeirra. Þau láti til skarar skríða þegar íþróttafólkið er að keppa einhvers staðar langt frá heimili sínu. Hátæknibúnaður sé notaður til að komast framhjá þjófavörnum, rugla í öryggismyndavélum og komast inn í læsta skápa.

Verðmæti upp á margar milljónir dollara í reiðufé og skartgripum hafa horfið á braut þjófanna. Ásamt fjölda annarra muna, svosem verðlaunapeninga og bikara sem erfitt er að bæta.

Sjö menn frá Síle hafa áður verið handteknir í tengslum við innbrotin en þeir eru grunaðir um að hafa hjálpað genginu að smygla stolnum varningi yfir landamæri Bandaríkjanna. Mál þeirra hefur verið til rannsóknar síðan í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×