Innlent

Vegavinna á Reykja­nes­braut vestan Straums­víkur

Lovísa Arnardóttir skrifar
Vegavinna verður á Reykjanesbraut í dag og á morgun.
Vegavinna verður á Reykjanesbraut í dag og á morgun. Vísir/Lýður Valberg

Í dag og á morgun verður unnið að viðgerð á Reykjanesbraut vestan við Straumsvíkur.

Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, kemur fram að annarri akrein verði lokað og að hraðatakmarkanir verði á svæðinu. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á vinnusvæðum.

Fjallað var um það síðasta sumar að síðasti kafli Reykjanesbrautarinnar hefði verið tvöfaldaður. Verkinu lauk svo í desember á síðasta ári. 


Tengdar fréttir

Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu formlega nýja tvöföldun á Reykjanesbraut í dag. Verklok eru áætluð í júní 2026 en nú þegar hefur verið opnað fyrir umferð um brautina.

Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120

Umferðaröryggissérfræðingur leggur til að framkvæmdir verði gerðar á bæði Reykjanesbraut og Hellisheiði til þess að hægt verði að hækka hámarkshraða á vegunum í 120 kílómetra á klukkustund. Þá verði hægt að lækka hámarkshraða á öðrum vegum niður í 70 kílómetra á klukkustund. Slík ráðstöfun kæmi í veg fyrir umferðarslys. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×