Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Valur Páll Eiríksson skrifar 25. maí 2026 22:34 Óskar Smári Haraldsson Vísir/Diego Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var kampakátur með 1-0 sigur á Þrótti Reykjavík í 6. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. „
Þetta var taktískur leikur. Hann var lokaður. Það var mikið slegist og hart barist í jöfnum leik. Þetta var örugglega ekki skemmtilegasti leikur sem áhorfendur hafa horft á. Það verður bara að hafa það fyrir áhorfendurna. Það er svona í þéttum 50/50 leik að hann er taktískur og hart barist eins og í öðrum leikjum,“ sagði Óskar Smári við Sýn Sport eftir leik. Varnarleikur Stjörnunnar var sérlega góður og sóknarleikurinn var sömuleiðis góður þó mörkin hafi ekki orðið fleiri. „Við hefðum alveg getað skorað fleiri mörk. Ég er ánægður með að vinna og halda hreinu. Ég tek það með mér á koddann í kvöld. Ég fer sáttur að sofa með það á bakinu. Við þurfum klárlega að gera betur í kringum teiginn. Við þurfum að skapa meira afgerandi færi, mér finnst það vera svona það fyrsta. Við fáum fullt af stöðum, fáum einn á móti markmanni og ágætis upphlaup en við þurfum klárlega að verða betri á síðasta þriðjunginum,“ sagði hann. Setjum stigin þrjú í pokann góða Stundum er sagt að sigrar næri. Aðeins var um annan sigur Stjörnunnar í deildinni á tímabilinu og því væntir Óskar Smári þess að Stjörnufólk sé vel nært í kvöld. „Við skulum vona það. Já, klárlega. Þetta er geggjaður sigur, að fara hérna á útivöll á móti jafngóðu liði og Þrótti og vinna iðnaðarsigur í rauninni er mjög kærkomið. Við höfum ekki verið að safna allt of mikið af stigum hérna í byrjun tímabils þannig að við tökum þessi stig og setjum þau í pokann góða og erum kát með það.“ Telur hann tilefni til bjartsýni en Óskar Smári kvaðst að lokum sérlega bjartsýnn að eðlisfari. „Já, ég er alltaf bjartsýnn. Ég er svo mikill bjartsýnismaður að ef ég væri að fara að spila á móti Liverpool á morgun myndi ég halda að við myndum vinna!“
Stjarnan Besta deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira